Eva Kristinsdóttir átti frábæran fyrsta keppnisdag á Illini Women’s Invitational háskólamótinu á Medinah í Illinois í Bandaríkjunum í gær. Eva bætti skólamet Iowa háskólans yfir 36 holur þegar hún lék hringina tvo á níu höggum undir pari. Hún jafnaði jafnframt met skólans fyrir lægsta átján holu skorið.
Eva lék fyrri hring dagsins á 66 höggum, sex undir pari, og þann síðari á 69 höggum, þremur undir pari.
Með 66 högga hringnum lék Eva á sínu lægsta skori í móti og jafnaði átján holu met skólans. Hún varð einnig fyrsti kylfingurinn á fyrsta ári til að ná þessum árangri.
Fimm fuglar, einn örn og einn skoli voru á skorkorti Evu á þessum frábæra hring, en hún sló í holu af 90 metra færi á þrettándu holu fyrir erni.
Eva er í þriðja sæti einstaklingskeppninnar fyrir lokahringinn, fjórum höggum á eftir Mariana Mesones, sem er á þrettán höggum undir pari.
Annað skólamet gæti fallið hjá Evu í dag. Met Iowa yfir 54 holur er 209 högg og nægir henni því að leika lokahringinn á 73 höggum eða betur til að bæta það.
Iowa skólinn er jafn í tíunda sæti liðakeppninnar á fimm höggum yfir pari. Lokahringurinn fer fram í dag, þriðjudaginn 13. október.



