GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Friðrik og Haukur á Royal Birkdale
Auglýsing

Þótt enginn íslenskur kylfingur sé á meðal keppenda á The Open í ár verður íslensk aðkoma að mótinu engu að síður til staðar. Haukur Örn Birgisson gegnir hlutverki við framkvæmd og dómgæslu mótsins, auk þess sem Friðrik Þór Halldórsson myndatökumaður starfar við upptökur á Royal Birkdale.

The Open, eða Opna mótið, fer fram dagana 16.-19. júlí. Mótið er haldið í 154. sinn og fer fram á Royal Birkdale í Southport á Englandi. Þetta er í ellefta sinn sem völlurinn hýsir mótið og hefur enginn völlur utan St Andrews fengið The Open oftar frá því Royal Birkdale hélt mótið fyrst árið 1954.

Haukur Örn í framkvæmdastjórn og við dómgæslu

Haukur Örn Birgisson situr í fimm manna framkvæmdastjórn The Open og verður á Royal Birkdale alla mótsvikuna.

Haukur Örn kemur beint frá Genesis Scottish Open, þar sem hann var fulltrúi R&A og The Open. Að mótinu loknu afhenti hann þremur efstu kylfingunum, sem ekki höfðu þegar tryggt sér keppnisrétt, sæti á The Open.

Frá fimmtudegi til sunnudags verður Haukur Örn jafnframt einn af dómurum mótsins. Ólíkt öðrum stórmótum fær hver og einn ráshópur á The Open úthlutaðan dómara sem gengur með þeim allan hringinn.

Á fyrsta hring fylgdi Haukur Örn ráshópnum sem hóf leik klukkan 8:36 að staðartíma, eða 7:36 að íslenskum tíma. Í ráshópnum voru Bandaríkjamaðurinn Stewart Cink, Scott Vincent frá Simbabve og Svíinn Joakim Lagergren. Á öðrum hring fylgir Haukur þeim Tom Kim, Billy Horschel og Mason Howell.

Friðrik Þór fylgir stórstjörnuholli

Friðrik Þór Halldórsson verður einnig á Royal Birkdale við myndatökur á mótinu. Á fyrstu tveimur keppnisdögunum fær hann það verkefni að fylgja einu áhugaverðasta hollinu.

Þar leika saman Spánverjinn Jon Rahm, heimamaðurinn Tommy Fleetwood og Bandaríkjamaðurinn Jordan Spieth.

Fleetwood ólst upp skammt frá Royal Birkdale og má búast við miklum stuðningi við hann. Spieth á jafnframt góðar minningar frá vellinum, en hann vann The Open þegar mótið fór síðast fram þar árið 2017. Rahm hefur á sama tíma unnið tvö risamót á ferlinum.

Ásamt þeim félögum eru nokkrir aðrir Íslendingar á svæðinu. Þar á meðal eru Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, og Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri GSÍ.

Síðasta risamót ársins

The Open er fjórða og síðasta risamót ársins í karlagolfinu. Scottie Scheffler hefur titil að verja eftir sigur sinn á Royal Portrush í fyrra og leikur fyrstu tvo hringina með Bryson DeChambeau og Tyrrell Hatton.

Rory McIlroy verður í ráshópi með Xander Schauffele og Matt Fitzpatrick, en meðal annarra fyrrverandi sigurvegara í keppendahópnum eru Jordan Spieth, Cameron Smith, Shane Lowry, Francesco Molinari og Henrik Stenson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ