GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Golfer mid-swing on a sunny golf course with snow-dusted mountains in the distance.
Mynd frá Jaðarsvelli í dag
Auglýsing

Golf 14 og Unglingamótaröð GSÍ heimsækja Jaðarsvöll á Akureyri um helgina, þar sem ungir og efnilegir kylfingar leika við frábærar aðstæður. Um 140 kylfingar mæta til leiks í mótin tvö, og verður því mikið líf á svæðinu.

Mót Unglingamótaraðarinnar hófst í dag, 17. júlí. Veðrið lék við keppendur frá fyrsta ráshópi til þess síðasta, og sáust góðir taktar um allan Jaðarsvöll.

Hér má sjá rástíma og stöðu í Unglingamótaröðinni

Í drengjaflokki var það Kristján Karl Guðjónsson, GM, sem lék best á fyrsta hring. Hann kom í hús á 68 höggum, þremur undir pari vallarins. Kristján fékk fjóra fugla og einn skolla á hringnum, en sagðist eiga mikið inni þegar Golfsambandið náði á honum á fimmtándu holu.

Þrír kylfingar eru tveimur höggum á eftir Kristjáni: Ágúst Már Þorvaldsson, Birgir Steinn Ottósson og Gunnar Þór Heimisson.

Tinna Alexía Harðardóttir, GK, leiðir stúlknaflokkinn eftir hring upp á 74 högg í dag. Stutt er á milli efstu kylfinga, en María Högnadóttir, GSE, er einungis höggi á eftir Tinnu eftir góða spilamennsku.

Það stefnir allt í annan frábæran dag á Jaðarsvelli á morgun. Sjáumst þar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ