GSÍ fjölskyldan
Poster for Golf14 youth golf event; left panel shows 'SveinskoTsvöllur' for ages 8-10, right panel 'Bakkakotsvöllur' for ages 11-14, with a July 14 date and central logo of two kids high-fiving.
#image_title
Auglýsing

Næsta Golf 14 mót sumarsins fer fram þriðjudaginn 14. júlí. Viðburðurinn verður haldinn á tveimur stöðum, annars vegar verður Bakkakotsmótið hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar og hins vegar verður Sveinskotsmótið hjá Golfklúbbnum Keili.

Bakkakotsmótið fer fram á Bakkakotsvelli og er ætlað kylfingum á aldrinum 11-14 ára. Keppt er í flokkum 11-12 ára og 13-14 ára drengja og stúlkna. Sveinskotsmótið fer fram hjá Keili og er ætlað yngstu kylfingunum, þar sem keppt verður í flokkum 8 ára og yngri og 9-10 ára drengja og stúlkna.

Group of children posing with medals on a green golf course, flags reading GOLF4 in the background.
Mynd úr Bakkakotsmótinu 2025

Leikinn verður höggleikur án forgjafar og ræst verður út með shotgun fyrirkomulagi eftir flokkum. Að leik loknum verður verðlaunaafhending og veitingar fyrir keppendur.

Skráning fer fram á golf.is og lýkur sunnudaginn 12. júlí kl. 23:59. Þátttökugjald í mótin er 3.900 krónur.

Hér er skráningarhlekkur í Bakkakotsmótið fyrir 11-14 ára

Hér má finna allar upplýsingar og skráningu í Sveinskotsmótið fyrir 10 ára og yngri

Bakkakotsmótið

Keppnisskilmálar – Golf 14 – Bakkakotsmótið

Golfklúbbi Mosfellsbæjar – Bakkakot 14. júlí 2026

Leikfyrirkomulag

Leikinn er höggleikur án forgjafar. Allir kylfingar leika 9 holur og eftir hring er pylsuveisla og verðlaunaafhending. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ en þó er hámarksfjöldi högga á hverri holu 9 högg. 

Áætlaðir rástímar

Shotgun 9:00

Shotgun 13:00 (ef keppendafjöldi fer yfir 44)*

* Skipt verður í 2 shotgun eftir aldri ef þátttaka fer yfir 44 kylfinga, 11-12 ára verða kl 9:00 og 13-14 ára verða kl 13:00

Rástímar og ráshópar

Ráshópar verða birtir á golfbox á mánudag fyrir mót og fá keppendur tölvupóst. Ræst verður með shotgun fyrirkomulagi (allir byrja á sama tíma á mismunandi upphafsteig). 

Þátttökuréttur

Allir kylfingar á aldrinum 11-14 ára hafa þátttökurétt í mótinu og er leikið í fjórum flokkum:

13-14 ára drengir

13-14 ára stúlkur

11-12 ára drengir

11-12 ára stúlkur

Fjöldi þátttakenda

Mest 88 keppendur

Skráning og þátttökugjald

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 sunnudaginn 12. júlí.  Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á dagur@golfmos.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Allir keppendur – kr. 3.900,-

Æfingahringur 

Ekki er innifalinn æfingahringur í mótsgjaldi. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka rástíma en vallargjald fyrir ungmenni er einungis 2000 kr. 

Teigar

13-14 ára drengir – gulir

13-14 ára stúlkur – rauðir

11-12 ára drengir – rauðir

11-12 ára stúlkur – rauðir

Kylfuberar

Kylfuberar eru leyfðir en einungis til að draga, ýta eða halda á golfsetti (tilsögn sem tengist golfleiknum er óheimilaður).

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.

Verðlaunaafhending

Verðlaunaafhending og hamborgaraveisla verður haldin að loknum leik hvers aldursflokks fyrir sig.

Mótsstjórn

Dagur Ebenezersson, Katrín Dögg Hilmarsdóttir, Andri Ágústsson, Karl Ómar Karlsson

Sveinskotsmótið

Keppnisskilmálar – Golf 14 – Sveinskotsmótið

Golfklúbburinn Keilir – 14. júlí 2026

Leikfyrirkomulag

Leikinn er höggleikur án forgjafar. Allir kylfingar leika 9 holur og eftir hring er verðlaunaafhending og veitingar. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ en þó er hámarksfjöldi högga á hverri holu 9 högg. 

Áætlaðir rástímar

Shotgun 9:00

 Shotgun 12:00 (ef keppendafjöldi fer yfir 44)*

* Skipt verður í 2 shotgun eftir aldri ef þátttaka fer yfir 44 kylfinga, 8 ára og yngri verða kl 9:00 og 9-10 ára verða kl 12:00

Rástímar og ráshópar

Ráshópar verða birtir á golfbox á mánudag fyrir mót og fá keppendur tölvupóst. Ræst verður með shotgun fyrirkomulagi (allir byrja á sama tíma á mismunandi upphafsteig). 

Þátttökuréttur

Allir kylfingar á aldrinum 11-14 ára hafa þátttökurétt í mótinu og er leikið í fjórum flokkum:

8 ára og yngri drengir

8 ára og yngri stúlkur

9-10 ára drengir

9-10 ára stúlkur

Fjöldi þátttakenda

Mest 88 keppendur

Skráning og þátttökugjald

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 sunnudaginn 12. júlí.  Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á birgir@keilir.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Allir keppendur – kr. 3.900,-

Æfingahringur 

Ekki er innifalinn æfingahringur í mótsgjaldi. Til að bóka æfingahring þarf að hafa samband við Golfverslun Keilis.

Teigar

8 ára og yngri drengir – Teigar 12

8 ára og yngri stúlkur – Teigar 12

9 – 10 ára drengir – Teigar 20

9 – 10 ára stúlkur – Teigar 20

Kylfuberar

Kylfuberar eru leyfðir en einungis til að draga, ýta eða halda á golfsetti og meiga hjálpa krökkunum með leikinn.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.

Verðlaunaafhending

Verðlaunaafhending verður haldin að loknum leik hvers aldursflokks fyrir sig með veitingum.

Mótsstjórn

Birgir Björn Magnússon, Axel Bóasson og Vikar Jónasson

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ