GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Group of people practicing putting on a golf green under a cloudy sky with sponsor logos visible above.
Flott mæting var á fyrsta Golfdag sumarsins
Auglýsing

Fyrsti Golfdagur sumarsins fór fram hjá Golfklúbbnum Úthlíð þann 30. maí. Golfdagarnir eru ætlaðir fyrir alla fjölskylduna og eru frábært tækifæri til að kynnast golfíþróttinni. Boðið var upp á skemmtilega kynningu á grunnatriðum íþróttarinnar, grill við klúbbhúsið, alls kyns veitingar og þátttakendum færðar gjafir frá KPMG og GSÍ.

Mæting var góð og tók klúbburinn vel á móti þeim sem sóttu viðburðinn.

Hjördís Björnsdóttir, framkvæmdarstjóri ferðaþjónustunnar í Úthlíð, sagði frá deginum:

„Fyrsti hlutinn var tekinn inni í skálanum á Úthlíðarvelli þar sem Guðjón Grétar Daníelsson PGA golfkennari tók á móti áhugasömum nýliðum og kynnti fyrstu skrefin í golfi. Hann sagði frá reglum og fór yfir helstu þætti sem byrjendur og þeir sem eru lengra komnir þurfa að hafa í huga við golfiðkun. 

Höfðu klúbbfélagar tekið saman helstu punkta á blað sem öllum viðstöddum var afhent. 

Þá var haldið út á golfvöll og þar sem ekki viðraði til almennrar golfiðkunar þá fengum við að nota 9. flötina til kennslu. Fór Guðjón vel yfir púttin, vippin og að sjálfsögðu gripið.

Þarna var grillið tilbúið og Jóhannes undrakokkur úr Múlakaffi kom og galdraði fram bestu pylsur sem nokkur hafði smakkað og það voru einnig veitingar frá klúbbfélögum inni í skála. 

Eftir að gestir höfðu gætt sér á pylsu og kók, flatköku með hangikjötssalati og nammibita, var farið aftur út á völl og þá var stóra sveiflan tekin fyrir og Guðjón nýttur til fullnustu. 

Hver er niðurstaðan eftir þennan góða dag – jú samstaða klúbbfélaga er mikilvæg, ungir sem eldri finna betur að þeir eru velkomnir í golf og núna þekkja þeir leiðina. Að sjálfsögðu setti veðrið strik í reikninginn, en við sem spilum golf á Íslandi vitum að ef við ætlum að leika okkur í þessari skemmtilegu íþrótt, þá þurfum við að eiga gott ullarsett frá 66N til að vera í næst sér, þá verður okkur ekki kalt.“

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ