Fyrsti viðburður Golf 14 tímabilsins fór fram á Nesvelli Nesklúbbsins dagana 30.-31. maí.
Metfjöldi kylfinga var skráður í mótið, en þangað mættu 166 sprækir keppendur á aldrinum 14 ára og yngri. Mikil stemning var á svæðinu, fjölskyldur og vinir komu saman og áttu góðan dag á Nesvelli. Völlurinn og veðrið skörtuðu sínu fegursta í mótinu um helgina. Þá reyndist púttvöllur sem Nesklúbburinn setti upp fyrir mótið mjög vel, og fóru allir sáttir heim eftir pylsu og djús í skálanum að leik loknum.
Við þökkum Nesklúbbnum og þeirra fólki fyrir afnot af vellinum og fyrir framkvæmd mótsins.
Hér að neðan má sjá öll helstu úrslit og myndir, en hægt er að sjá öll úrslit mótsins hér.
13 – 14 ára drengir (27 holur):
- sæti: Kristófer Áki Aðalsteinsson, GA – 103 högg
- sæti: Ásgeir Páll Baldursson, GM – 106 högg
- sæti: Emil Darri Birgisson, GM – 106 högg

13 – 14 ára stúlkur (27 holur):
- sæti: Elísabet Þóra Ólafsdóttir, NK – 109 högg
- sæti: Emilía Sif Ingvarsdóttir, GO – 120 högg
- sæti: Sólveig Arnardóttir, GK – 125 högg

11 – 12 ára drengir (18 holur):
- sæti: Eiríkur Bogi Karlsson, GKG – 62 högg
- sæti: Ísak Hrafn Jónasson, GR – 62 högg
- sæti: Ólafur Bjarni Þórðarson, GSS – 69 högg

11 – 12 ára stúlkur (18 holur):
- sæti: Ásta Sigríður Egilsdóttir, GO – 87 högg
- sæti: Arna Dís Hallsdóttir, GKG – 92 högg
- sæti: Hekla Ólafsdóttir, GO – 92 högg

10 ára og yngri, drengir (18 holur):
- sæti: Jóhann Karl Ingvarsson, GO – 82 högg
- sæti: Andri Þór Guðmundsson, GKG – 85 högg
- sæti: Haraldur Breki Ólafsson, NK – 85 högg

10 ára og yngri stúlkur (18 holur):
- sæti: Saga Karitas Steinsdóttir, NK – 98 högg
- sæti: Hildur María Karlsdóttir, GO – 103 högg
- sæti: Edda Elmarsdóttir, GKG – 103 högg












Næsta mót Golf 14 tímabilsins fer fram dagana 5.-6. júní á golfvöllum GKG, sjáumst þar.



