GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Male golfer in a white cap and purple shirt mid-swing on a lush green golf course, with a bag of clubs nearby.
Gunnlaugur Árni Sveinsson
Auglýsing

Gunnlaugur Árni Sveinsson og liðsfélagar hans í LSU-háskólanum eru úr leik í úrslitum NCAA-háskólagolfsins, eftir fjórða hring mótsins sem lauk í gærkvöldi. Eftir erfiða byrjun í mótinu lék ekkert lið síðustu tvo hringina betur en LSU, og var Gunnlaugur með næstbesta skor allra kylfinga á lokahringjunum tveimur.

Hér má sjá úrslit höggleiksins

Gunnlaugur Árni endaði jafn í 32. sæti einstaklingskeppninnar á pari vallarins. Hann lék hringi sína á 77, 74, 69 og 68 höggum. LSU hafnaði í tólfta sæti mótsins á þremur höggum yfir pari, fimm höggum frá áttunda sætinu. Átta efstu liðin halda áfram í útsláttarhluta mótsins í dag.

LSU-liðið fór hægt af stað á fyrsta hring og var jafnt í næstsíðasta sæti. Fjögur bestu skor liðsins af fimm telja á hverjum keppnisdegi og voru Gunnlaugur og félagar fimmtán höggum yfir pari.

Tournament standings for five players with score changes and a round-by-round results grid on the right.
Fyrstu hringirnir

Á öðrum hring léku þeir betur og komu í hús á fimm höggum yfir pari sem lið. Gunnlaugur lék sinn hring á 74 höggum, tveimur yfir pari, og bætti sig um þrjú högg á milli hringja. Þrátt fyrir bætinguna fór LSU aðeins upp um eitt sæti og ljóst var að þriðji hringurinn þyrfti að vera frábær, en aðeins fimmtán efstu liðin héldu áfram eftir hann.

Team roster with headshots on the left and a dense stats grid showing red circular scores and blue square markers across multiple columns.
Bætingar á öðrum hring

Á þriðja keppnisdegi varð fljótt ljóst að LSU-menn ætluðu sér ekki að fara heim. Gunnlaugur og félagar fóru af stað af krafti, sóttu hvern fuglinn á eftir öðrum og léku hringinn saman á átján höggum undir pari. Þeir voru ekki aðeins níu höggum betri en næstbesta liðið, heldur bættu þeir einnig besta hring mótsins um tvö högg. Gunnlaugur lék á 69 höggum, þremur undir pari, og fór upp um 44 sæti í einstaklingshluta mótsins. Þá setti liðsfélagi hans, Dan Hayes, nýtt vallarmet þegar hann spilaði á 64 höggum, átta undir pari.

Leaderboard table showing players Dan Hayes, Jay Mendell, Matthew Dodd-Berry, and Gunnlaugur Arni Sveinsson with red result circles and blue move markers across their standings.
Ótrúlegir hringir LSU manna

Lokahringurinn fór vel af stað hjá Gunnlaugi og félögum, sem hófu leik á tíunda teig. Gunnlaugur fékk fugl á fyrstu tvær holur sínar og endaði svo af krafti, með þrjá fugla á síðustu fjórum holunum.

Leaderboard showing four players with round-by-round results and final scores: Gunnlaugur Arni Sveinsson, Dan Hayes, Noah McWilliams, and Jay Mendell.
Lokahringur LSU

LSU endaði í tólfta sæti höggleiksins, sem er besti árangur skólans síðan árið 2017, þegar Tígrarnir enduðu í níunda sæti. Góður endir á öðru tímabili Gunnlaugs í háskólagolfinu. Hans næsta mót verður lokaúrtökumót fyrir U.S. Open þann 8. júní. Dagbjartur Sigurbrandsson verður þar einnig á meðal keppenda.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ