Gunnlaugur Árni Sveinsson og liðsfélagar hans í LSU háskólanum hefja í dag leik í úrslitum NCAA háskólagolfsins. Mótið fer fram á Omni La Costa Resort & Spa í Carlsbad í Kaliforníu dagana 29. maí til 3. júní.
LSU hefur leik á tíunda teig kl. 14:45 að staðartíma, eða kl. 21:45 að íslenskum tíma. Fyrsta hringinn leikur LSU með Ole Miss og North Carolina.
LSU tryggði sér sæti í úrslitamótinu með öflugri frammistöðu í NCAA Marana svæðismótinu sem fram fór í Arizona dagana 18.-20. maí. Þar endaði LSU í þriðja sæti á 30 höggum undir pari, en efstu fimm liðin tryggðu sér sæti í úrslitamótinu. Gunnlaugur lék mótið á tveimur höggum yfir pari og endaði jafn í 43. sæti einstaklingskeppninnar.

Fyrirkomulag úrslitamótsins er þrískipt. Fyrstu þrjá dagana verða leiknar 54 holur í höggleik. Að þeim loknum komast 15 efstu liðin áfram í fjórða hringinn, sem leikinn verður á mánudag. Þar verður einstaklingstitillinn ráðinn og átta efstu liðin tryggja sér sæti í holukeppni, þar sem bandarískur háskólameistari liða verður krýndur miðvikudaginn 3. júní.
LSU er eitt sigursælasta lið háskólagolfsins og tekur nú þátt í NCAA úrslitamótinu í 44. sinn. Skólinn hefur fimm sinnum orðið bandarískur háskólameistari í karlagolfi, síðast árið 2015.



