GSÍ fjölskyldan
Five children in jackets sit close together on a bench at a golf course, with players and carts in the background under a cloudy sky.
Mótið hefur reynst frábær viðbót við golfsumarið
Auglýsing

Dagana 18.-20. júní fer fram eitt skemmtilegasta mót sumarsins, Íslandsmót golfklúbba fyrir 12 ára og yngri. Mótið verður haldið í tíunda sinn og hefur vaxið mikið undanfarin ár.

Leikið er eftir PGA Junior League fyrirmyndinni þar sem lögð er áhersla á liðsheild, gleði og skemmtilega keppni fyrir unga kylfinga.

Við hvetjum þjálfara og forsvarsfólk klúbba til að skrá sveitir til leiks sem gætu haft gaman af þátttöku í mótinu.

Golfklúbbur Mosfellsbæjar heldur mótið í ár. Þátttökutilkynningar, ásamt fjölda sveita, skulu berast eigi síðar en einni viku fyrir fyrsta mótsdag á netfangið: dagur@golfmos.is

Nöfn leikmanna, Golfbox númer og uppröðun fyrir fyrstu umferð skulu síðan berast mótsstjórn í síðasta lagi kl. 12:00 þremur dögum fyrir fyrsta mótsdag.

Þátttökugjald er 25.000 kr. fyrir hverja sveit og skal greiðast eigi síðar en á fyrsta mótsdegi.

Reikningsupplýsingar:
Golfklúbbur Mosfellsbæjar
Kt. 650581-0329
Reikningur: 116-26-329

Kvittun fyrir greiðslu skal senda á:
dagur@golfmos.is

Hver klúbbur getur sent fleiri en eina sveit til leiks, þó ekki í sömu deild. Ef þátttaka fer yfir hámarksfjölda sveita hafa klúbbar með eina sveit forgang.

Einnig er hægt að sækja um heimild fyrir sameiginlegri sveit tveggja eða fleiri klúbba af sama landssvæði ef erfitt reynist að manna lið.

Athygli er vakin á því að leikhraði getur verið töluverður í neðri deildum og því mikilvægt að keppendur séu tilbúnir fyrir verkefnið. Fyrir þau sem hafa litla eða enga reynslu af keppnisgolfi gæti Golfhátíðin á Flúðum verið góður kostur.

Hlökkum til að sjá sem flestar sveitir taka þátt í frábæru móti fyrir yngstu kylfinga landsins.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ