Korpubikarinn í samvinnu við First Water hefst föstudaginn 29. maí á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Mótið er annað mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og verða leiknar 54 holur á þremur keppnisdögum.
Smelltu hér fyrir rástíma og stöðuna
Keppendahópurinn er sterkur líkt og önnur ár í þessu flotta móti. Íslandsmótið í golfi verður einnig leikið á Korpúlfsstöðum seinna í sumar.
Í karlaflokki eru 72 keppendur. Þar er meðalforgjöf keppenda +0.7, lægsta forgjöfin er +5.4 og hæsta forgjöfin er 5.1. Í karlaflokki eru 44 keppendur með 0 eða lægra í forgjöf.
Fjórir af fimm efstu kylfingum Reykjanesmótsins eru á meðal keppenda. Þar á meðal eru Aron Snær Júlíusson og Tómas Eiríksson Hjaltested, sem báðir unnu til verðlauna í því móti. Akureyringurinn Veigar Heiðarsson mætir einnig í sitt fyrsta mót á tímabilinu, en hann kemur inn af krafti eftir að hafa leikið í bandaríska háskólagolfinu í vetur.

Í kvennaflokki eru 18 keppendur. Meðalforgjöfin er 1, lægsta forgjöfin er +4 en sú hæsta er 6.1.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir stefnir á sinn annan sigur í röð eftir flotta frammistöðu fyrr í maí. Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir er einnig á meðal keppenda, en hún endaði önnur í LET Access móti í síðustu viku.

Keppendur eru alls 90, og koma þeir frá 15 klúbbum víðsvegar af landinu.
GR á þar flesta kylfinga eða tuttugu og sjö alls. GKG kemur þar á eftir með sextán keppendur, og GM sendir fjórtán. Sjö klúbbar eru með keppendur í bæði kvenna- og karlaflokki.
| Golfklúbbur | Karlar | Konur | Samtals |
|---|---|---|---|
| Golfklúbbur Reykjavíkur | 21 | 6 | 27 |
| Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | 15 | 1 | 16 |
| Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 10 | 4 | 14 |
| Golfklúbburinn Keilir | 6 | 2 | 8 |
| Golfklúbbur Selfoss | 5 | 1 | 6 |
| Golfklúbbur Akureyrar | 2 | 1 | 3 |
| Golfklúbbur Suðurnesja | 2 | 1 | 3 |
| Golfklúbburinn Leynir | 3 | 0 | 3 |
| Nesklúbburinn | 3 | 0 | 3 |
| Golfklúbbur Ísafjarðar | 2 | 0 | 2 |
| Golfklúbbur Álftaness | 1 | 0 | 1 |
| Golfklúbbur Borgarness | 1 | 0 | 1 |
| Golfklúbbur Öndverðarness | 1 | 0 | 1 |
| Golfklúbbur Skagafjarðar | 0 | 1 | 1 |
| Golfklúbburinn Oddur | 0 | 1 | 1 |
| Samtals | 72 | 18 | 90 |



