GSÍ fjölskyldan
Split-image of a boy and a girl standing on a golf course, each holding a trophy and wearing medals after a competition, with sponsor logos at the bottom.
Björn og Ásdís eftir sigurinn
Auglýsing

Annað mót Unglingamótaraðarinnar fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 30.-31. maí. Alls tóku 102 keppendur þátt, 31 í stúlknaflokki og 71 í piltaflokki.

Hér má sjá úrslit mótsins

Björn Breki Halldórsson, GKG, og Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR, stóðu uppi sem sigurvegarar eftir spennandi mót um helgina.

Björn Breki lék hringi sína á 69, 66 og 67 höggum og lauk leik á ellefu höggum undir pari. Landsliðskylfingurinn fékk tvo erni og fimmtán fugla á hringjunum þremur. Þetta var fyrsti sigur Björns á Unglingamótaröðinni, en hann varð Íslandsmeistari á Golf 14 mótaröðinni árið 2024.

Person in a red beanie swings a golf club outdoors, with a second golfer nearby and green fields in the background.
Björn Breki og Arnar Daði

Arnar Daði Svavarsson, GKG, varð annar á sjö höggum undir pari. Arnar setti nýtt vallarmet á fyrsta hring þegar hann kom í hús á 62 höggum, níu undir pari.

Skarphéðinn Egill Þórisson, NK, varð þriðji á fimm höggum undir pari eftir frábæran endasprett á lokahringnum.

Ásdís Rafnar vann mótið á fjórum höggum yfir pari, en hún lék hringi sína á 74, 69 og 74 höggum. Ásdís varð einu höggi á undan þremur kylfingum eftir gífurlega spennandi lokakafla.

Jafnar í öðru sæti voru þær Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, Lilja Maren Jónsdóttir, GA, og Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG. Þær leiddu allar mótið á einhverjum tímapunkti lokahringsins, sem sýnir hversu mikil spenna var í flokknum.

Female golfer in navy outfit swinging a club on a green golf course, with tees on the ground and trees in the background.
Ásdís lék flott golf í mótinu

Elva María Jónsdóttir, GK, var verðlaunuð fyrir besta árangur kylfings í flokki 15-16 ára. Elva lék hringina þrjá á 75, 76 og 73 höggum og lauk leik á ellefu höggum yfir pari.

Young woman on a golf course holding a silver trophy, with a cloudy sky and green fairways in the background.
Elva María

Næsta mót Unglingamótaraðarinnar fer fram dagana 4.-6. júní á Leirdalsvelli GKG, sjáumst þar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ