Annað mót Unglingamótaraðarinnar fer fram í Mosfellsbæ dagana 30.-31. maí. Alls taka 102 keppendur þátt, 31 í stúlknaflokki og 71 í piltaflokki.
Hér má sjá rástíma og stöðu mótsins
Leikinn er höggleikur án forgjafar. Leiknar eru 54 holur í flokki 15-18 ára pilta og stúlkna. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.
Að loknum 36 holum skal leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. Séu tveir eða fleiri leikmenn á jafnir með hæsta skor þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir leika áfram.
Golfklúbburinn Keilir og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar eiga flesta keppendur í mótinu, en báðir klúbbarnir senda 23 kylfinga.
| Golfklúbbur | Fjöldi keppenda |
|---|---|
| Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | 23 |
| Golfklúbburinn Keilir | 23 |
| Golfklúbbur Reykjavíkur | 16 |
| Golfklúbbur Akureyrar | 12 |
| Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 7 |
| Golfklúbburinn Leynir | 7 |
| Nesklúbburinn | 6 |
| Golfklúbbur Borgarness | 2 |
| Golfklúbburinn Setberg | 2 |
| Golfklúbbur Skagafjarðar | 1 |
| Golfklúbbur Suðurnesja | 1 |
| Golfklúbbur Vestmannaeyja | 1 |
| Golfklúbburinn Oddur | 1 |
| Samtals | 102 |



