Íþróttahreyfingin og covid
Auglýsing

heilbrigðisráðherra hefur nú gefið út nýja reglugerð sem tekur gildi 10. maí og gildir til og með 26. maí. Með henni eru gerðar tilslakanir á íþróttastarfi. Helstu breytingar í reglugerð heilbrigðisráðherra sem snerta íþróttastarfið eru eftirfarandi:

  • Heimilt verður að hafa að hámarki 75 þátttakendur í hverju rými á æfingum og í keppni.
  • Heimilt verður að hafa að hámarki 150 manns í hverju rými á áhorfendasvæðum að uppfylltum skilyrðum skv. 3. grein reglugerðar heilbrigðisráðherra og að hámarki þrjú rými fyrir áhorfendur í hverri byggingu. Skilyrðin eru eftirfarandi:  Allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum. Allir gestir séu skráðir í númeruð sæti, a.m.k. nafn, kennitala og símanúmer. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum. Allir gestir noti andlitsgrímu nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru. Tryggt sé að fjarlægð milli ótengdra gesta sé a.m.k. 1 metri.  Komið verði eins og kostur er í veg fyrir frekari hópamyndun fyrir viðburð, í hléi og eftir viðburð. Skipuleggjendum viðburða er skylt að tryggja þegar gestir eru ekki í sætum, svo sem fyrir og eftir viðburð og í hléi, að ekki komi fleiri saman en 50 manns og að virt sé 2 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra aðila. Þrátt fyrir að heimilt sé að hafa hlé á viðburðum skal biðja gesti um að halda kyrru fyrir í sætum sínum. Þá er sala eða boð um veitingar ekki heimil í hléi. Umgengni í hverju hólfi skal vera í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnalæknis þar að lútandi svo koma megi í veg fyrir blöndun hólfa. 

    Sé eitthvert ofangreindra skilyrða ekki uppfyllt er hámarksfjöldi á viðburði 50 manns í hverju rými.Gæta þarf að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.

  • Sund- og baðstaðir mega opna fyrir 3/4 af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2015 eða síðar telja ekki með í hámarksfjölda.
  • Skíðasvæði mega opna fyrir 3/4 af hámarksfjölda gesta en þar verður að gæta að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.

Sjá frétt á vef heilbrigðisráðuneytis.

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra, sem gildir til 26. maí 2021.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ