Þórdís Geirsdóttir, Golfklúbbnum Keili, fagnaði sigri á Íslandsmóti eldri kylfinga í flokki 50 ára og eldri sem fram fór í Vestmannaeyjum.
Það var mikil spenna á lokaholunum en Þórdís tryggði sér sigurinn með því að vippa boltanum ofaní á lokaholunni,
Ásgerður Sverrisdóttir, GR, varð í öðru sæti á 248 höggum og Kristín Sigurbergsdóttir, GK, varð þriðja á 254 höggum.
Íslandsmót eldri kylfinga 2021 fór fram dagana 15.-17. júlí í Vestmannaeyjum. Mikill áhugi var á mótinu hjá keppendum og komust ekki allir inn í mótið sem sóttust eftir því.
![Screen-Shot-2021-07-17-at-8.49.46-PM - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2021/07/Screen-Shot-2021-07-17-at-8.49.46-PM-1024x520.png)