Golfklúbbur Akureyrar hélt í kvöld vel heppnaða fræðslu fyrir nýliða og aðra félagsmenn undir yfirskriftinni „Hvað er að vera kylfingur?“.
Fræðslan fór fram í klúbbhúsinu á Jaðri og var þétt setin. Margir félagsmenn mættu til að hlusta, fræðast og kynna sér betur þær venjur og reglur sem mikilvægt er að hafa í huga á golfvellinum.
Þorsteinn Hallgrímsson, fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi, leiddi fræðsluna og fór meðal annars yfir skráningu í rástíma, staðfestingu á komu, leikhraða og almenna umgengni á golfvellinum. Einnig var rætt um hvernig kylfingar geta undirbúið sig fyrir golfhring, stuðlað að góðu flæði á vellinum og sýnt öðrum kylfingum tillitssemi.
Mikil fjölgun hefur orðið í hópi kylfinga á Íslandi á undanförnum árum og er því gott að nýliðar geti nýtt sér góða leiðsögn um þau grunnatriði sem fylgja íþróttinni. Fræðsla á borð við þessa stuðlar að betri upplifun allra sem sækja golfvellina.













