/

Deildu:

Auglýsing
–  Margt áhugavert verður í boði á æfingasvæði GKG mánudaginn 16. maí

Stelpugolf hefur fest sig í sessi sem eitt af vorverkefnum PGA á Íslandi og Golfsambands Íslands. Markmiðið er að stuðla að aukinni þátttöku kvenna í golfi og auka fjölskylduímynd golfíþróttarinnar. Að sjálfsögðu geta þó fjölskyldumeðlimir af báðum kynjum komið á Stelpugolf og tekið þátt í skemmtilegum þrautum og leikjum – pútt, vipp, pitch og teighögg. Gestir sem mæta fá tækifæri til að fara í gegnum mismunandi stöðvar á æfingasvæði GKG þar sem verða til staðar PGA golfkennarar sem leiðbeina. Einnig verður æfingahringur og þrautir í SNAG golfi..

Á undanförnum árum hafa mörg hundruð kvenna nýtt sér þetta tækifæri og í fyrra er talið að um 800 konur hafi mætt á svæðið og hvetjum við alla til að bjóða vinkonum, mömmum, ömmum systrum, frænkum, saumaklúbbum o.s.frv. með sér í golf. Það verða kylfur á staðnum og frí golfkennsla – það þarf bara að mæta! Segir Andrea.

Stelpugolf 2016 fer fram mánudaginn 16. maí og verður að venju á æfingasvæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.  

Stelpugolfdagurinn er samvinnuverkefni PGA á Íslandi, GSÍ, GKG,  ZO•ON, Icelandair Cargo, Íslandsbanka og Eimskips.

Nánari upplýsingar um viðburðinn er að finna á facebook/stelpugolf

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ