Íslandsmótið í holukeppni kvenna 2025 fer fram Hlíðavelli 20.-23. júní. Til stóð að mótið færi fram á Urriðavelli 13.-15. júní. Eftir mat á vallaraðstæðum á Urriðavelli var það ákvörðun mótsstjórnar og GSÍ í samráði við Golfklúbbinn Odd að ástand flata á Urriðavelli væri því miður ekki nægilega gott svo að upplifun keppenda yrði sú sem allir vilja.
Því hefur mótinu verið frestað til 20.-23. júní og fært á Hlíðavöll. Mótið mun fara fram samhliða karlaflokki. Kvennaflokkur mun leika 36 holu höggleik á föstudegi, frí á laugardegi, 16 manna úrslit og 8 manna úrslit á sunnudegi og undanúrslit og úrslit á mánudegi.
Skráning í mótið er hafin og má finna í hlekk hér að neðan.
Skráningu lýkur fimmtudaginn 12. júní kl. 23:59.
Keppnisskilmálar:
Skráning og þátttökuréttur
Mótið fer fram 20.-23. júní á Hlíðavelli.
Föstudagur 20. júní: 36 holu höggleikur
Laugardagur 21. júní: Frí
Sunnudagur 22. júní: 16 manna úrslit og 8 manna úrslit
Mánudagur 23. júní: Undanúrslit og úrslit
Leikið er samkvæmt reglugerð um Íslandsmót í holukeppni í flokki karla og kvenna. Í kvennaflokki er hámarksforgjöf 8,5 en hámarksfjöldi keppenda er 84. Hámarksforgjöf miðast við forgjöf þátttakanda kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur fimmtudaginn 5. júní kl. 23:59.
Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis. Hámarksforgjöf miðast við forgjöf þátttakanda kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Þátttakendur skulu vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.
Þátttökurétt hafa:
1. Ríkjandi Íslandsmeistari í holukeppni.
2. Leikmenn með stig á heimslista atvinnukylfinga (www.owgr.com) kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.Leikmenn í sætum 1 – 2000 á heimslista áhugakylfinga (www.wagr.com) kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.
3. Stigahæstu kylfingar á stigamótaröðinni, þar til 32 þátttakendum er náð. Stig reiknast þannig að við stig ársins bætast stig frá síðasta ári, frá og með fyrsta stigamóti eftir Íslandsmótið í holukeppni, þ.e. síðasta Íslandsmót í holukeppni telur ekki í stigafjöldanum. Hér má sjá stigalistann.
4. Forgjafarlægstu kylfingarnir sem eru skráðir til leiks eftir að skráningarfresti lýkur, þar til hámarksfjölda er náð.
Séu kylfingar jafnir í sæti á stigamótaröðinni, sbr. lið 4, telst sá ofar sem ofar varð í Íslandsmótinu í golfi. Séu kylfingar enn jafnir, telst sá ofar sem náð hefur efra sæti á öðrum stigamótum. Séu kylfingar þá enn jafnir ræður hlutkesti. Séu kylfingar með jafnháa forgjöf sbr. 5 lið hér að ofan ræður hlutkesti. Miðað er við forgjöf þátttakenda kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.
Í fyrri hluta Íslandsmótsins er leikinn 36 holu höggleikur án forgjafar, þar sem sextán efstu keppendurnir komast áfram í útsláttarkeppni.
Að höggleik loknum eru leiknar fjórar umferðir í holukeppni:
- 1. umferð: 16 manna holukeppni.
- 2. umferð: 8 manna holukeppni þeirra sem áfram komast.
- 3. umferð: Undanúrslit, 4 manna holukeppni þeirra sem áfram komast.
- 4. umferð: Úrslit, leikur um 3. sæti og úrslitaleikur.
Undankeppni
Mótsstjórn er heimilt að halda undankeppni um fjögur síðustu sætin ef umframskráning verður sem nemur a.m.k. sex sætum. Þátttaka í slíkri undankeppni skal bundin við þá leikmenn sem standast forgjafarmörk og hafa skráð sig til keppni innan tilskilins skráningarfrests. Undankeppnin er 18 holu höggleikur án forgjafar. Mótsstjórn ákveður leikstað og -tíma og setur nánari reglur, t.d. um lágmarksfjölda þátttakenda. Ákvörðun um hvort slík undankeppni verði haldin (ef næg umframskráning verður) skal verða tilkynnt þegar skráningarfresti lýkur.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti.
1.sæti: 140.000 kr.
2. sæti: 100.000 kr.
3. sæti: 70.000 kr.
Mótsgjald og æfingahringir
Mótsgjald er 11.000 kr. og skal greitt við skráningu. Þátttökugjald fæst einungis endurgreitt séu forföll boðuð eigi síðar en kl. 18:00, þremur dögum fyrir fyrsta keppnisdag.
Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi en skilyrði er að vera búin að greiða mótsgjald fyrir æfingahring. Formlegir æfingadagar eru 18. og 19. júní en rástímar fyrir æfingahringi eru kl. 8:00-15:00. Kylfingar þurfa að hafa samband við klúbbinn tímanlega til að bóka rástíma: golfmos@golfmos.is eða í síma 5666999
Þeir kylfingar sem komast ekki inn í mótið fá mótsgjald endurgreitt.
Mótstjórn
- Brynjar Geirsson
- Björn Ólafur Bragason
- Kristín María Þorsteinsdóttir
- Ágúst Jensson
- Hlín Hlöðversdóttir
Dómarar: Sigurður Geirsson og Davíð Baldur Sigurðsson.
*Birt með fyrirvara um breytingar*