Golfklúbburinn Keilir heldur Hvaleyrarbikarinn 2026 dagana 17.-19. júlí. Mótið er fimmta mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni
Síðasti skráningardagur í mótið er í dag, mánudaginn 13. júlí. Lokað verður fyrir skráningu kl. 23:59.
Leikfyrirkomulag mótsins er höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi.
Skráningu og frekari upplýsingar má finna í hlekk hér að neðan.
.




