Auglýsing

Landsliðshópar GSÍ og atvinnukylfingar frá Íslandi æfðu saman við góðar aðstæður á Hacienda Del Alamo golfsvæðinu á Spáni um miðjan janúar á þessu ári. Þetta var fyrsta sameiginlega æfingaferð hópsins í æfingabækistöð íslenska landsliðsins á Hacienda Del Alamo.

Golfsambandið gerði samning á síðasta ári þess efnis við Hacienda Del Alamo og er þetta í fyrsta sinn sem slíkur samningur er gerður á vegum GSÍ. Markmið samstarfsins við Hacienda Del Alamo er að veita íslenskum landsliðs- og atvinnukylfingum hagkvæm og spennandi tækifæri að æfa að vetrarlagi við frábærar aðstæður.

Landsliðs- og atvinnukylfingar hafa þess kost að halda á svæðið á eigin vegum til viðbótar við skipulagðar æfingaferðir.

Í þessu myndbandi er stutt samantekt frá fyrstu æfingaferðinni – þar sem að rætt er við Ólaf Björn Loftsson, afreksstjóra GSÍ, Kristján Þór Einarsson, Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, Ragnhildi Kristinsdóttur og Gunnlaug Árna Sveinsson.



Boðið er upp á aðgengi að þremur 18 holu golfvöllum, Hacienda Del Alamao, Saurines og Mar Manor. Á Hacienda Del Alamo er svo heimsklassa æfingaaðstaða þar sem finna má 36 sláttubása, grasteig, vippflöt, tvær púttflatir og 6 holu æfingavöll.

Markmið samstarfsins við Hacienda Del Alamo er að veita íslenskum landsliðs- og atvinnukylfingum hagkvæm og spennandi tækifæri að æfa að vetrarlagi við frábærar aðstæður. Landsliðs- og atvinnukylfingar hafa þess kost að halda á svæðið á eigin vegum til viðbótar við skipulagðar æfingarferðir – og voru 10 atvinnukylfingar með í fyrstu æfingaferð GSÍ á þetta svæði.

Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ, stjórnaði æfingum hópsins en þjálfarar frá þremur klúbbum voru til aðstoðar á æfingunum. Þeir Derrick Moore, GR, Heiðar Davíð Bragason, GA og Dagur Ebenezersson, GM. Arnar Már Ólafsson, GKG, forfallaðist vegna veikinda og komst ekki með í ferðina. Baldur Gunnbjörnsson var sjúkraþjálfari hópsins og Sigurður Elvar Þórólfsson, útbreiðslustjóri GSÍ fylgdi hópnum.

Alls voru 48 í hópnum þar af 42 leikmenn.

Þrátt fyrir að hópurinn hafi verið stór þá fór vel um kylfingana á rúmgóðu æfingasvæði Hacienda Del Alamo.

Á æfingunum gátu íslensku kylfingarnir slegið af grasi á æfingasvæðinu, æfingavippflötin er stór líkt og púttæfingaflötin. Það er einnig 6 holu æfingavöllur á æfingasvæðinu. Hópurinn æfði sameiginlega fyrir hádegi alla daga ferðarinnar. Hópurinn var með aðgengi að tveimur 18 holu golfvöllum í þessari ferð, Hacienda Del Alamo og Saurines, en golfvöllurinn við Mar Menor verður einnig í boði.

Tíu atvinnukylfingar æfðu með með hópnum í janúar. Þeir eru: Aron Snær Júlíusson (GKG), Bjarki Pétursson (GKG), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GKG) og Sigurður Arnar Garðarsson (GKG). Andri Þór Björnsson (GR), Haraldur Franklín Magnús (GR), Hákon Örn Magnússon (GR), Ragnhildur Kristinsdóttir (GR). Axel Bóasson (GK) og Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK).

Landsliðshópurinn sem var við æfingar á Hacienda Del Alamo var þannig skipaður:

Arnar Daði Svavarsson (GKG)
Guðjón Frans Halldórsson (GKG)
Gunnlaugur Árni Sveinsson (GKG)
Gunnar Þór Heimisson (GKG)
Karen Lind Stefánsdóttir (GKG)
Kristófer Orri Þórðarson (GKG)
Saga Traustadóttir (GKG)
Snorri Hjaltason (GKG)

Auður Bergrún Snorradóttir (GM)
Berglind Erla Baldursdóttir (GM)
Eva Kristinsdóttir (GM)
Katrín Sól Davíðsdóttir (GM)
Kristján Þór Einarsson (GM)
Kristófer Karl Karlsson (GM)
María Eir Guðjónsdóttir (GM)
Pamela Ósk Hjaltadóttir (GM)
Sara Kristinsdóttir (GM)
Sverrir Haraldsson (GM)

Daníel Ísak Steinarsson (GK)
Hjalti Jóhannsson (GK)
Markús Marelsson (GK)

Böðvar Bragi Pálsson (GR)
​​Elías Ágúst Andrason (GR)
Helga Signý Pálsdóttir (GR)
Jóhannes Guðmundsson (GR)
Nína Margrét Valtýsdóttir (GR)
Perla Sól Sigurbrandsdóttir (GR)

Bjarni Þór Lúðvíksson (NK)

Fjóla Margrét Viðarsdóttir (GS)

Skúli Gunnar Ágústsson (GA)
Veigar Heiðarsson (GA)


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ