Golfsamband Íslands

Saga og Sigurður Bjarki Íslandsmeistarar í holukeppni 2022

Saga Traustadóttir, GKG og Sigurður Bjarki Blumenstein, GR. Íslandsmeistarar í holukeppni 2022. Mynd/seth@golf.is

Saga Traustadóttir, GKG, og Sigurður Bjarki Blumenstein, GR, eru Íslandsmeistarar í holukeppni 2022. Úrslitin réðust í dag á Hlíðavelli í Mosfellsbæ.

Þetta er í annað sinn sem Saga fagnar þessum titli en þetta er fyrsti titill Sigurðar Bjarka á GSÍ mótaröðinni.

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM varð önnur í kvennaflokknum og Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK varð þriðja.

Kristófer Orri Þórðarson, GKG, varð annar í karlaflokknum og Kristján Þór Einarsson, GM varð þriðji.

Hér er viðtal við Sögu Traustadóttur, GKG, Íslandsmeistara í holukeppni 2022.

Hér viðtal við Sigurð Bjarka Blumenstein, GR, Íslandsmeistara í holukeppni 2022.

Kristófer Orri Þórðarson, GKG, Sigurður Bjarki Blumenstein, GR og Kristján Þór Einarsson, GM. Mynd/seth@golf.is.
Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, Saga Traustadóttir, GKG og Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK. Mynd/seth@golf.
Saga Traustadóttir, GKG, Íslandsmeistari í holukeppni 2022. Mynd/seth@golf.
Sigurður Bjarki Blumenstein, GR. Íslandsmeistari í holukeppni 2022. Mynd/seth@golf.
Saga Traustadóttir, GKG og Sigurður Bjarki Blumenstein, GR – Íslandsmeistarar í holukeppni 2022. Mynd/seth@golf.is.

Mótið í ár var það 35. í röðinni en keppt hefur verið um Íslandsmeistaratitla í holukeppni í karla – og kvennaflokki samfellt frá árinu 1988.

Úrslitaleikirnir hófust rétt eftir kl. 13 í dag og hér fyrir neðan eru hlekkir á stöðu, og úrslit. Smelltu á myndirnar til að opna hlekkina.

Undanúrslit kvennaflokkur – smelltu hér fyrir úrslit og gang mála.

Undanúrslit karlaflokkur – smelltu hér fyrir úrslit og gang mála.

Kristófer Orri Þórðarson, GKG, sigraði Aron Emil Gunnarsson, GOS, 3/2, í undanúrslitum.

Sigurður Bjarki Blumenstein, GR, sigraði Kristján Þór Einarsson, GM, 1/0 í undanúrslitum.

Pamela Hjaltadóttir, GM, sigraði Hafdísi Öldu Jóhannsdóttur, GK, 3/2 í undanúrslitum:

Saga Traustadóttir, GR, sigraði Árnýu Eik Dagsdóttur, GR, 5/3 í undanúrslitum.

Síðdegis á laugardag réðust úrslit í 8-manna úrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni í golfi 2022. Aðstæður voru nokkuð krefjandi og tölverður vindur var á keppnisvellinum – en Hlíðavöllur er í góðu ástandi og kunnu keppendur vel að meta vallaraðstæður.

Úrslit úr leikjum dagsins í 8-manna úrslitum eru hér fyrir neðan.

Undanúrslitin fara fram í fyrramálið á Hlíðavelli og úrslitaleikirnir hefjast rétt eftir kl. 12:30 á sunnudag.

Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK, sigraði Fjólu Margréti Viðarsdóttur, GS, 3/2.
Árný Eik Dagsdóttir, GR, sigraði Ásdís Valtýsdóttir, GR, 2/0.
Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM sigraði 3/2 gegn Berglindi Erlu Baldursdóttur, GM.
Saga Traustadóttir, GKG sigraði Maríu Eir Guðjónsdóttur, GM 1/0.

Í undanúrslitum mætast Pamela Ósk / Hafdís Alda og Saga / Árný Eik.

Saga sigraði á þessu móti árið 2019 á Akranesi. Pamela er yngsti keppandinn á mótinu en hún er 14 ára gömul.

Kristján Þór Einarsson, GM sigraði Svanberg Adda Stefánsson, GK 3/2.
Kristófer Orri Þórðarson, GKG sigraði Gunnlaug Árna Sveinsson, GKG 3/1
Sigurður Bjarki Blumenstein, GR, sigraði Viktor Inga Einarsson, 5/3.
Aron Emil Gunnarsson, GOS, sigraði Sigurð Arnar Garðarsson, GKG, 2/1.

Í undanúrslitum eigast við Sigurður Bjarki / Kristján Þór og Aron Emil Gunnarsson/ Kristófer Orri.

Kristján Þór hefur tvívegis sigrað á Íslandsmótinu í holukeppni, 2009 og 2014 – ásamt því að hafa fagnað Íslandsmeistaratitlinum í golfi árið 2008.

Karlaflokkur – smelltu hér fyrir úrslit og gang mála í 8-manna úrslitum

Kvennaflokkur – smelltu hér fyrir úrslit og gang mála í 8-manna úrslitum

Smelltu hér fyrir riðlaskiptingu, rástíma og úrslit mótsins í heild sinni :

Myndasafn frá mótinu er hér:

Keppendur á Íslandsmótinu voru alls 64, 32 konur og 32 karlar.

Keppendum í karla – og kvennaflokki var raðað í átta riðla og þar réð forgjöf að morgni eftir að skráningarfresti lauk í hvaða riðlum þeir léku.

Í riðlakeppninni voru leiknar þrjár umferðir – fyrsta umferðin fyrir hádegi föstudaginn 17. júní, önnur umferð eftir hádegi 17. júní og þriðja umferðin fyrir hádegi laugardaginn 18. júní.

Sigurvegarinn úr hverjum riðli komst áfram í 8-manna úrslit.

Átta manna úrslit hófust eftir hádegi laugardaginn 18. júní – undanúrslitin fara fram fyrir hádegi sunnudaginn 19. júní og úrslitaleikirnir hefjast rétt eftir hádegi sunnudaginn 19. júní.

Úrslit leikja úr riðlakeppninni er í hlekkjunum hér fyrir neðan:

KONUR:

# 1 Heiðrún, Bjarney, Berglind Erla, Birna Rut.

# 2 Berglind B, Ásdís, Eva, Þóra.

#3 – Saga, Helga, Karen, Heiða Rakel.

#4 – Andrea, Hafdís, María, Hrafnhildur.

# 5 – Bryndís, Sara, Fjóla, Auður.

# 6 – María Eir, Katrín Sól, Heiða, Þóra Kristín.

# 7 – Ingunn, Kristín Sól, Árný Eik, Hekla.

# 8 – Anna, Nína, Pamela, Elsa Maren.

KARLAR

# 1 – Sigurður, Tómas, Böðvar, Logi.

# 2 – Daníel, Elvar, Kristófer Karl, Svanberg.

# 3 – Sverrir, Birgir, Viktor Ingi, Arnór Tjörvi.

# 4 – Kristófer Orri, Dagbjartur, Nökkvi, Bjarni Þór.

# 5 – Hákon Örn, Björn, Ragnar Már, Gunnlaugur.

# 6 – Andri Már Ó, Sigurður Bjarki, Arnór Ingi, Guðmundur Rúnar.

# 7 – Lárus Ingi, Rúnar A., Ingi Þór, Kristján Þór.

# 8 – Jóhannes, Aron Emil, Breki, Andri Már G.

1. keppnisdagur:

Berglind Erla Baldursdóttir, GM, er í kjörstöðu eftir að hafa sigrað í báðum leikjum dagsins. Hún sigraði Heiðrúnu Önnu Hlynsdóttur, GOS, sem þarf nú að stóla á að Berglind tapi í lokaumferðinni til þess að komast áfram í átta manna úrslit.  Nánar hér:

Berglind Björnsdóttir, GR, vann báðar viðureignir sínar á 1. keppnisdegi og það gerði Ásdís Valtýsdóttir, GR, einnig. Þær eigast við í lokaumferðinni í hreinum úrslitaleik um sæti í 8-manna úrslitum. Nánar hér:

Saga Traustadóttir, GKG, sem hefur einu sinni fagnað þessum titli er með tvo sigra eftir tvær fyrstu umferðirnar. Helga Signý er með einn sigur líkt og Karen Lind Stefánsdóttir, GKG.  Saga og Helga Signý mætast í lokaumferðinni. Nánar hér:

Í þessum riðli er mikil spenna og allt getur gerst í lokaumferðinni. Andrea Ásmundsdóttir, GA, er með 1 1/2 vinning eftir tvær fyrstu umferðirnar en hún mætir Hafdísi Öldu Jóhannsdóttur, GK, í lokaumferðinni – sem er með 1 vinning líkt og María Björk Pálsdóttir, GKG. 

Í þessum riðli er mikil spenna og allt getur gerst í lokaumferðinni. Andrea Ásmundsdóttir, GA, er með 1 1/2 vinning eftir tvær fyrstu umferðirnar en hún mætir Hafdísi Öldu Jóhannsdóttur, GK, í lokaumferðinni – sem er með 1 vinning líkt og María Björk Pálsdóttir, GKG. Nánar hér:

Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS, er taplaus eftir tvær fyrstu umferðirnar. Hún mætir Auði Sigmundsdóttur, GR, í lokaumferðinni sem er með 1 vinning. Sara Kristinsdóttir, GM, er með 1 vinning og mætir Bryndísi Maríu Ragnarsdóttur, GK, í lokaumferðinni sem er án stiga eftir tvær umferðir. Nánar hér:

Katrín Sól Davíðsdóttir, GM, er með tvo vinninga eftir fyrstu tvær umferðirnar. María Eir Guðjónsdóttir, GM, er með 1 1/2 vinning og þær mætast í lokaumferðinni. Í þessum riðli eru allir keppendurnir fjórir úr GM.

Katrín Sól Davíðsdóttir, GM, er með tvo vinninga eftir fyrstu tvær umferðirnar. María Eir Guðjónsdóttir, GM, er með 1 1/2 vinning og þær mætast í lokaumferðinni. Í þessum riðli eru allir keppendurnir fjórir úr GM. Nánar hér:

Árný Eik Dagsdóttir, GR, er með tvo sigra og í góðri stöðu fyrir lokaumferðina. Hún mætir Heklu Ingunni Daðadóttur, GM, í lokaumferðinni en Hekla er stigalaus. Ingunn Einarsdóttir, GKG, og Kristín Sól Guðmundsdóttir, GM, eru báðar með 1 vinning og þurfa að stóla á Heklu í lokaumferðinni til þess að eiga möguleika á að komast áfram. Nánar hér:

Árný Eik Dagsdóttir, GR, er með tvo sigra og í góðri stöðu fyrir lokaumferðina. Hún mætir Heklu Ingunni Daðadóttur, GM, í lokaumferðinni en Hekla er stigalaus. Ingunn Einarsdóttir, GKG, og Kristín Sól Guðmundsdóttir, GM, eru báðar með 1 vinning og þurfa að stóla á Heklu í lokaumferðinni til þess að eiga möguleika á að komast áfram . Nánar hér:

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, sem er yngsti keppandinn í kvennaflokknum – er með tvo sigra eftir fyrsta keppnisdaginn. Elsa Maren Steinarsdóttir, GL, er mótherji Pamelu í lokaumferðinni en Elsa er án stiga í riðlinum. Anna Júlía Ólafsdóttir, GKG og Nína Margrét Valtýsdóttir, GR, eru báðar með 1 sigur.  Nánar hér:

Karlar:

Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, og Tómas Eiríksson Hjaltested, GR, leika úrslitaleikk í lokaumferðinni um sæti í 8-manna úrslitum – en þeir eru báðir með tvo sigra. Nánar hér:

Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, og Tómas Eiríksson Hjaltested, GR, leika úrslitaleikk í lokaumferðinni um sæti í 8-manna úrslitum – en þeir eru báðir með tvo sigra. Nánar hér:

Elvar Már Kristinsson, GR og Svanberg Addi Stefánsson, GK eru báðir með 1 1/2 vinning og Kristófer Karl Karlsson, GM, er með 1 vinning. Í lokaumferðinni mætast Elvar Már og Daníel Ísak Steinarsson, GK, sem er án stiga. Kristófer Karl og Svanberg Addi mætast í lokaumferðinni. Nánar hér:

Sverrir Haraldsson, GM, sem hefur titil að verja er með 1 1/2 vinnning og Viktor Ingi Einarsson, GR, er einnig með 1 1/2 vinning en þeir skildu jafnir. Í lokaumferðinni er Birgir Björn Magnússon, GK, mótherji Sverris en Birgir er án stiga.Arnór Tjörvi Þórsson, GR, er með 1 sigur. Nánar hér:

Sverrir Haraldsson, GM, sem hefur titil að verja er með 1 1/2 vinnning og Viktor Ingi Einarsson, GR, er einnig með 1 1/2 vinning en þeir skildu jafnir. Í lokaumferðinni er Birgir Björn Magnússon, GK, mótherji Sverris en Birgir er án stiga.Arnór Tjörvi Þórsson, GR, er með 1 sigur.

Nánar hér:

Kristofer Orri Þórðarson, GKG og Dagbjartur Sigurbrandsson, GR eru báðir með 2 vinninga og leika úrslitaleik í lokaumferðinni um hvor þeirra kemst áfram í 8-manna úrslit. Nánar hér:

Kristofer Orri Þórðarson, GKG og Dagbjartur Sigurbrandsson, GR eru báðir með 2 vinninga og leika úrslitaleik í lokaumferðinni um hvor þeirra kemst áfram í 8-manna úrslit. Nánar hér:

Spennan í þessum riðli er mikil þar sem að allir leikmennir eru með 1 vinning. Hákon Örn og Björn Óskar mætast í lokaumferðinni og Ragnar Már og Gunnlaugur Árni mætast. Nánar hér:

Spennan í þessum riðli er mikil þar sem að allir leikmennir eru með 1 vinning. Hákon Örn og Björn Óskar mætast í lokaumferðinni og Ragnar Már og Gunnlaugur Árni mætast. Nánar hér:

Sigurður Bjarki, GR, er efstur fyrir lokaumferðina með 1 1/2 vinning. Hann mætir Andra Má Óskarssyni, GOS, í lokaumferðinni sem er með 1/2 vinning. Arnór Ingi; GR og Guðmundurn Rúnar, GS er með 1 vinning hvor og þeir mætast í lokaumferðinni.  Nánar hér:

Kristján Þór Einarsson, GM, er með 2 sigra fyrir lokaumferðina. Þar mætir hann Inga Þór Ólafsyni, GM, sem er með 1 vinning. Rúnar Arnórsson, GK, er einnig með 1 vinning og mætir hann Lárusi Inga, GA, í lokaumferðinni. Nánar hér:

Aron Emil Gunnarsson, GOS, er með 2 vinning og Jóhannes Guðmundsson, GR, er mótherji Arons í lokaumferðinni. Jóhannes er með 1 vinning. Andri Már Guðmundsson, GM, er með 1 vinning og mætir Breka Gunnarssyni Arndal, GKG, í lokaumferðinni. Nánar hér:

Alls eru 64 keppendur og koma þeir frá 10 klúbbum.

Átta klúbbar eru með keppendur í báðum flokkum.

GM með flesta keppendur eða 19 alls sem er 30% af heildinni. GR er með 17 keppendur og 27% af heildinni. GKG kemur þar næst með um 14% hlutfall.

Heildarfjöldi keppenda 2022

KlúbburKonurKarlarSamtalsHlutfall
GM1271930%
GR7101727%
GKG54914%
GK34711%
GA1123%
GOS1235%
GS1235%
GL112%
GO112%
NK223%
Samtals323264

Í kvennaflokki eru keppendur frá 9 klúbbum. GM er með 12 keppendur af alls 32 og er það 38% hlutfall. GR kemur þar næst með 7 keppendur eða 22% og GKG er með 16%.

Meðalforgjöf í kvennaflokki er 3,3. Lægsta forgjöfin er +2,4 og sú hæsta 7,9. Meðalaldur keppenda er um 21 ár. Yngsti keppandinn er 14 ára og sá elsti 45 ára.

Heildarfjöldi keppenda í kvennaflokki:

KlúbburKonurHlutfall
GM1238%
GR722%
GKG516%
GK39%
GA13%
GOS13%
GS13%
GL13%
GO13%
Samtals32

Í karlaflokki eru keppendur frá 8 klúbbum. GR með flesta keppendur eða 10 og 31% hlutfall, og GM kemur þar næst með 22% hlutfall eða 7 keppendur. GKG og GK eru með 13% hlutfall – með 4 keppendur frá hvorum klúbbi fyrir sig.

Meðalforgjöf í karlaflokki er +1,7 þar sem að lægsta forgjöfin er +3,6 og sú hæsta 0.8. Meðaldur keppenda í karlaflokki er 23 ár, elsti keppandinn er 47 ára og sá yngsti er 17 ára.

Heildarfjöldi keppenda í karlaflokki:

KlúbburKarlarHlutfall
GR1031%
GM722%
GKG413%
GK413%
NK26%
GOS26%
GS26%
GA13%
32

Keppendur í kvennaflokki:

Nafn (forgjöf)KlúbburAldur
1Heiðrún Anna Hlynsdóttir, (+2,4)GOS22
2Berglind Björnsdóttir, (+1,1)GR30
3Saga Traustadóttir, (+1,0)GKG24
4Andrea Ýr Ásmundsdóttir, (+0,9)GA20
5Bryndís María Ragnarsdóttir, (1,1)GK27
6María Eir Guðjónsdóttir, (1,2)GKG18
7Ingunn Einarsdóttir, (1,4)GKG39
8Anna Júlía Ólafsdóttir, (1,5)GKG22
9Nína Margrét Valtýsdóttir, (1,7)GM18
10Kristín Sól Guðmundsdóttir, (2,0)GM20
11Katrín Sól Davíðsdóttir, (2,9)GM18
12Sara Kristinsdóttir, (3,1)GM17
13Ásdís Valtýsdóttir, (3,3)GR20
14Helga Signý Pálsdóttir, (3,3)GR16
15Hafdís Alda Jóhannsdóttir, (3,3)GK25
16Bjarney Ósk Harðardóttir, (3,4)GR18
17Berglind Erla Baldursdóttir, (3,5)GM17
18Eva Kristinsdóttir, (3,6)GM15
19Karen Lind Stefánsdóttir, (3,7)GKG16
20María Björk Pálsdóttir, (3,8)GKG21
21Árný Eik Dagsdóttir, (4,3)GR21
22Fjóla Margrét Viðarsdóttir, (4,3)GS15
23Heiða Guðnadóttir, (4,3)GM33
24Pamela Ósk Hjaltadóttir, (5,1)GM14
25Elsa Maren Steinarsdóttir, (5,4)GL17
26Hekla Ingunn Daðadóttir, (5,6)GM45
27Auður Bergrún Snorradóttir, (5,9)GM15
28Auður Sigmundsdóttir, (6,0)GR18
29Hrafnhildur Guðjónsdóttir, (6,1)GO27
30Heiða Rakel Rafnsdóttir (6,3)GM16
31Þóra Kristín Ragnarsdóttir, (7,8)GK24
32Birna Rut Snorradóttir, (7,9)GM15

Keppendur í karlaflokki:

Nafn (forgjöf)KlúbburAldur
1Sigurður Arnar Garðarsson, (+3,6)GKG20
2Daníel Ísak Steinarsson, (+3,6)GK22
3Sverrir Haraldsson, (+3,1)GM22
4Kristófer Orri Þórðarson, (+3,1)GKG25
5Hákon Örn Magnússon, (+3,0)GR24
6Andri Már Óskarsson, (+3,0)GOS31
7Lárus Ingi Antonsson, (+2,6)GA20
8Jóhannes Guðmundsson, (+2,5)GR24
9Aron Emil Gunnarsson, (+2,4)GOS21
10Rúnar Arnórsson, +2,2GK30
11Sigurður Bjarki Blumenstein, (+2,2)GR21
12Björn Óskar Guðjónsson, (+2,2)GM25
13Dagbjartur Sigurbrandsson, (+2,1)GR20
14Birgir Björn Magnússon, (+2,1)GK25
15Elvar Már Kristinsson, (+2,0)GR22
16Tómas Eiríksson Hjaltested, (+1,9)GR20
17Böðvar Bragi Pálsson, (+1,8)GR19
18Kristófer Karl Karlsson, (+1,6)GM21
19Viktor Ingi Einarsson, (+1,4)GR22
20Nökkvi Gunnarsson (+1,4)NK46
21Ragnar Már Ríkarðsson, (+1,2)GM22
22Arnór Ingi Finnbjörnsson, +1,0GR33
23Ingi Þór Ólafson, (+0,9)GM21
24Breki Gunnarsson Arndal, (+0,9)GKG19
25Andri Már Guðmundsson, (+0,8)GM21
26Kristján Þór Einarsson, (+0,7)GM34
27Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, (+0,6)GS47
28Gunnlaugur Árni Sveinsson, (+0,6)GKG17
29Bjarni Þór Lúðvíksson, (0,0)NK18
30Arnór Tjörvi Þórsson, (0,0)GR20
31Svanberg Addi Stefánsson, (0,3)GK20
32Logi Sigurðsson, (0,8)GS20

Fimm fyrrum Íslandsmeistarar í holukeppni mæta til leiks í ár.

Rúnar Arnórsson, GK, sem sigraði tvö ár í röð (2018 og 2019) er á meðal keppenda. Kristján Þór Einarsson, GM, á einnig tvo titla í þessari keppni (2009 og 2014) en hann mun einnig keppa í ár. Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR, sigraði árið 2011 og er með á þessu móti líkt og Sverri Haraldsson, GM, sem hefur titil að verja er mættur í titilvörnina á heimavelli sínum

Þrír fyrrum Íslandsmeistarar í holukeppni eru skráðar til leiks í kvennaflokknum. Saga Traustadóttir, GKG, sem sigraði árið 2019 tekur þátt líka og þær Heiða Guðnadóttir (GM) (2015), og Berglind Björnsdóttir (GR) (2016).

Íslandsmeistarar í holukeppni frá upphafi:

Karlaflokkur:

Kvennaflokkur:

Exit mobile version