/

Deildu:

Auglýsing

Golfleikur Varðar og Golfsambands Íslands er farinn af stað – tíunda sumarið í röð. Í leiknum geta spilarar kannað þekkingu sína á golfreglunum og þeir sem standast prófið geta fengið hin eftirsóknarverðu Regluvarðar verðlaun. Vinsældir Regluvarðarins hafa aukist jafnt og þétt frá því hann hóf göngu sína 2013. Þá tóku rúmlega 4.000 þátt en í fyrra fór fjöldi spilara í 36.500.

Spreyttu þig á golfreglunum og þú gætir unnið glæsileg verðlaun!

Smelltu hér til að taka þátt

Golfleikur til gagns og gamans

Regluvörðurinn er til gamans gerður fyrir kylfinga og aðra áhugasama um golfíþróttina en auðvitað geta allir tekið þátt í leiknum. Golfleikurinn er sérlega góður til þess að láta reyna á kunnáttuna á golfreglunum og til upprifjunar á þeim. Spilarar í leiknum geta unnið brons-, silfur- eða gullverðlaun. Með betri árangri aukast líkurnar á að hreppa stóra vinninginn. Regluvörðurinn hefur svo sannarlega fest sig í sessi hjá kylfingum og áhugafólki um golfíþróttina og þátttakendum fjölgar með hverju árinu.

Golfleiknum er jafnframt ætlað að vekja athygli á Golfvernd Varðar, sem er sérstök trygging fyrir kylfinga gegn þjófnaði á golfbúnaði og öðrum óvæntum atvikum utan vallar sem innan.

Traustur bakhjarl GSÍ

Vörður er traustur bakhjarl GSÍ og meðal þess sem Vörður veitir fé til er útgáfa alþjóðlegrar reglubókar fyrir íslenska kylfinga. Golf byggir á nákvæmum og dálítið flóknum reglum. Það þarf stundum að láta reyna á reglubókina sem allir kylfingar ættu að hafa með í golfpokanum. Golfreglur og tryggingaskilmálar eiga það sameiginlegt að fjalla af nákvæmni og í smáatriðum um atriði sem fæstir vilja hugsa um. Þegar á reynir er hins vegar gott að geta gripið í reglubókina.

Allir kylfingar landsins eru hvattir til að kynna sér reglur golfsins og hafa alltaf eintak af Golfreglubókinni í golfpokanum.

Við vonum að allir kylfingar eigir ánægjulegar stundir á golfvellinum í sumar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ