Íslandsmót unglinga 2026 í holukeppni fór fram á Selfossi dagana 23.-25. júlí.
Keppni hófst með höggleik þar sem kylfingum var raðað í sæti fyrir útsláttarkeppnina. Átta efstu kylfingarnir komust áfram í átta manna úrslit.
Til úrslita í stúlknaflokki 13-14 ára léku Eiríka Malaika Stefánsdóttir og Embla Dröfn Hákonardóttir. Eiríka Malaika vann úrslitaleikinn 4/3 og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 2026.
Eiríka Malaika var þriðja eftir höggleikinn. Hún vann Eddu Friðriksdóttur 6/5 í átta manna úrslitum og mætti síðan Hrafnhildi Sigurðardóttur í undanúrslitum. Eiríka Malaika hafði betur, 2/1, og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.
Embla Dröfn var efst eftir höggleikinn. Hún vann Margréti Birtu Snorradóttur 5/3 í átta manna úrslitum og lagði síðan Sólveigu Arnardóttur 1/0 í jöfnum undanúrslitaleik.
Hrafnhildur tryggði sér þriðja sætið með 7/5 sigri gegn Sólveigu í leiknum um bronsið.
Verðlaunasæti:
- Eiríka Malaika Stefánsdóttir, GM
- Embla Dröfn Hákonardóttir, GKG
- Hrafnhildur Sigurðardóttir, GKG
Hér má sjá úrslit allra leikja






