Íslandsmót unglinga 2026 í holukeppni fór fram á Selfossi dagana 23.-25. júlí.
Keppni hófst með höggleik þar sem kylfingum var raðað í sæti fyrir útsláttarkeppnina. Átta efstu kylfingarnir komust áfram í átta manna úrslit.
Til úrslita í drengjaflokki 13-14 ára léku Bjartur Ægisson og Brynjar Morgan Brynjarsson. Úrslitaleikurinn var afar jafn og þurfti bráðabana til að knýja fram úrslit. Bjartur hafði betur á 15. holu og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 2026.
Bjartur var sjöundi eftir höggleikinn. Hann vann Bjarka Þór Elíasson 1/0 í átta manna úrslitum og mætti síðan Kristófer Áka Aðalsteinssyni í undanúrslitum. Bjartur vann þann leik einnig 1/0 og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.
Brynjar Morgan var fjórði eftir höggleikinn. Hann vann Emil Darra Birgisson 3/1 í átta manna úrslitum og lagði síðan Jón Reykdal Snorrason, sem hafði verið efstur eftir höggleikinn, 3/1 í undanúrslitum.
Jón Reykdal tryggði sér þriðja sætið með 2/0 sigri gegn Kristófer Áka í leiknum um bronsið.
Verðlaunasæti:
- Bjartur Ægisson
- Brynjar Morgan Brynjarsson
- Jón Reykdal Snorrason
Hér má sjá úrslit allra leikja





