Fimmtudagskvöldið 18. júní verður boðið upp á óvenjulegan og metnaðarfullan golfviðburð á Þorláksvelli, þegar Golfklúbbur Þorlákshafnar tekur á móti hinu alþjóðlega Random Golf Club. Um er að ræða svokallað Mad Scramble, þar sem markmiðið er að fá sem flesta kylfinga til að leika saman, alla í sama hóp og á sama rástíma, í Texas Scramble-fyrirkomulagi.
Stefnt er að því að um 100 kylfingar taki þátt í viðburðinum og leiki níu holur. Viðburðir af þessu tagi hafa notið vinsælda erlendis og dregið að sér stóran hóp þátttakenda þar sem áhersla er lögð á upplifun, samveru og skemmtun fremur en hefðbundna keppni.
Þrettán manna hópur frá Random Golf Club mun taka þátt í viðburðinum og setja svip sinn á dagskrána. Hópurinn er þekktur á heimsvísu, ekki síst á samfélagsmiðlum, fyrir að nálgast golf á nýstárlegan og aðgengilegan hátt. Random Golf Club var stofnaður af Erik Anders Lang og hefur það að leiðarljósi að efla samfélag, vináttu og gleði innan golfíþróttarinnar.
Skipuleggjendur leggja áherslu á að kvöldið verði ekki aðeins tileinkað golfi heldur einnig félagslegri upplifun. Á dagskrá verða meðal annars tónlist, veitingar, partýtjald og ýmis afþreying sem endurspeglar óhefðbundinn og lifandi anda viðburðarins.
Viðburðurinn hefst klukkan 18:30. Þátttökugjald 7.900 krónur á mann og eru veitingar innifaldar.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu GÞ
Einnig má kynna sér verkefnið á vef Random Golf Club:
https://randomgolfclub.com/pages/mad-scramble-thorlakshofn-golf-club



