GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 2026 fyrir kylfinga 12 ára og yngri hefst fimmtudaginn 18 júní og lokadagurinn er laugardagurinn 20. júní.

Keppt er á þremur völlum.

Fimmtudagur 18. júní – Sveinskot, Golfklúbburinn Keilir
Föstudagur 19. júní – Landið, Golfklúbbur Reykjavíkur
Laugardagur 20. júní – Bakkakot, Golfklúbbur Mosfellsbæjar

*Verðlaunaafhending og lokahóf fer fram laugardaginn 20. júní í Bakkakoti.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 

Reglugerð Íslandsmóts golfklúbba 12 ára og yngri

Í Íslandsmóti golfklúbba 12 ára og yngri mega sveitir vera skipaðar drengjum eingöngu, telpum eingöngu eða vera blandaðar kynjum.

Leikið er eftir PGA Junior League fyrirmyndinni, sem kallast PGA krakkagolf á Íslandi.

Hver sveit skal skipuð að lágmarki 4 leikmönnum og að hámarki 6 leikmönnum.

Leiknar eru 9 holur í hverri umferð með Texas Scramble höggleiks fyrirkomulagi, sem skiptast upp í þrjá þriggja holu leiki. Hver þriggja holu leikur gefur eitt flagg.

Liðsstjóri ákveður tvo keppendur sem hefja leik og jafnframt raðar niður varamönnum ef einhverjir eru í liðinu. Hver keppandi verður að leika að minnsta kosti eitt flagg (3 holur).

Hver viðureign tveggja klúbba gefur 1 stig því liði sem sigrar. Alls eru 6 flögg í pottinum og það lið sem leikur á færri höggum samtals hvern þriggja holu leik vinnur það flagg. Það lið sem vinnur fleiri flögg samtals vinnur viðureignina og eitt stig. Ef lið leika þriggja holu leik á jafn mörgum höggum fær hvort lið hálft flagg. Ef lið skilja jöfn með 3 flögg fær hvort lið hálft stig.

Fyrirmynd mótsins er PGA krakkagolf, og er sérstakt skorkort notað til að halda utan um stöðu leikja.

Sérreglur:

  • Vindhögg telja ekki.
  • Leyfilegt er að taka víti flatar megin við vítasvæði og einnig ef bolti fer út fyrir vallarmörk að
  • taka víti líkt og um rautt vítasvæði sé að ræða.
  • Tekið skal upp eftir 9 högg og skráð 10.
  • Ofangreint á ekki við Hvítu og Gulu deildirnar, en þar er leikið á hefðbundinn máta
  • samkvæmt almennum keppnisskilmálum og staðarreglum, sem stjórn GSÍ setur.
  • Kylfuberar eru óheimilir. Þó mega leikmenn sem ekki eru að leika vera kylfuberar fyrir
  • liðsfélaga sína.

Það lið sem hlýtur flest stig í Hvítu deildinni fær titilinn Íslandsmeistari golfklúbba 12 ára og

yngri.

Það lið sem hlýtur flest stig í Gulu deildinni fær titilinn Íslandsmeistari golfklúbba telpna 12

ára og yngri.

Það lið sem vinnur flest stig í Bláu, Rauðu, Grænu og Gráu deildinni fær titilinn deildarmeistari

viðkomandi deildar. Hljóti tvö lið jafnmörg stig í efsta sæti ræður innbyrðis viðureign. Ef

innbyrðis viðureign var jöfn eða ef fleiri en tvö lið fá jafnmörg stig, fær það lið sem vinnur fleiri

flögg efra sætið. Ef enn er jafnt ræður hlutkesti úrslitum.

Mótsstjórn mótsins 2025 skipa Dagur Ebenezersson GM, Karl Ómar Karlsson GM, Páll Birkir Reynisson GR, Hrafnhildur Guðjónsdóttir GKG og Birgir Björn Magnússon, GK.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ