Ragnhildur Kristinsdóttir byrjar háskólaferilinn með Eastern Kentucky keppnisliðinu með miklum látum. Ragnhildur gerði sér lítið fyrir og sigraði á Pinehurst Intercollegiate mótinu.
Ragnhildur, sem er úr Golfklúbbi Reykjavíkur, lék hringina þrjá á +14 samtals (73-82-75) eða 230 höggum. Ragnhildur var þremur höggum betri en liðsfélagi hennar, Elsa Moberly, sem varð önnur á +17.
Eva Björnsdóttir, sem er einnig á sínu fyrsta ári með ULM háskólanum, varð í 19. sæti á +33 samtals (87-79-83) 249 höggum. Eva er líkt og Ragnhildur úr GR.
Særós Óskarsdóttir sem leikur með Boston University varð í 38. sæti á +62 samtals (94-97 -87) 278 högg
![- Golfsamband Íslands Egils-Gullmótið 2016 Eimskipsmótaröðin.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/evakaren13IMG_9130-1024x727.jpg)
![- Golfsamband Íslands Símamótið 2016](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_2338-1024x683.jpg)