/

Deildu:

Auglýsing

Golfsamband Íslands hefur valið kylfinga ársins 2023. Ragnhildur Kristinsdóttir og Haraldur Franklín Magnús eru kylfingar ársins. Þau eru bæði úr Golfklúbbi Reykjavíkur.

Þetta er í 26. skipti þar sem tveir einstaklingar eru valdir sem kylfingar ársins hjá GSÍ, kona og karl. Þetta er í fyrsta sinn sem Ragnhildur fær þessa viðurkenningu og í fjórða sinn sem Haraldur Franklín er kylfingur ársins.

Árið 1973 var fyrsta kjörið hjá GSÍ á kylfingi ársins en frá árinu 1998 hefur karl og kona verið valin sem kylfingar ársins.

Birgir Leifur Hafþórsson hefur oftast verið kjörinn kylfingur ársins í karlaflokki eða alls 11 sinnum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er sú sem oftast hefur fengið þessa viðurkenningu hjá konunum eða alls sex sinnum.

Ragnhildur Kristinsdóttir


Ragnhildur lék á sínu fyrsta ári sem atvinnukylfingur á LET Access mótaröðinni í Evrópu. Hún lék á 12 mótum á mótaröðinni og náði best 22. sæti í móti í júlí.

Ragnhildur varð Íslandsmeistari í höggleik í fyrsta sinn á Urriðavelli í ágúst.

Hún tók þátt í úrtökumóti í fyrir Evrópumótaröðina í Marokkó í desember og komst á lokastig mótsins.

Haraldur Franklín Magnús

Haraldur Franklín lék á 13 mótum á Áskorendamótaröðinni í ár. Hann komst 9 sinnum í gegnum niðurskurðinn og náði best 19. sæti í móti í júní.

Haraldur Franklín komst í fyrsta sinn á lokastig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í nóvember og tryggði sér þar takmarkaðan þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta tímabili ásamt fullum þátttökurétti á Áskorendamótaröðinni.

Haraldur lék nýverið í tveimur mótum á Evrópumótaröðínni í Ástralíu og lenti til að mynda í 33. sæti í fyrra mótinu.



Kylfingar ársins frá upphafi:

Árið 1973 var fyrsta kjörið hjá GSÍ á kylfingi ársins. Birgir Leifur Hafþórsson hefur oftast verið kjörinn kylfingur ársins í karlaflokki eða alls 11 sinnum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er sú sem oftast hefur fengið þessa viðurkenningu hjá konunum eða alls sex sinnum.

1973Björgvin ÞorsteinssonGA1
1974Sigurður ThorarensenGK1
1975Ragnar ÓlafssonGR1
1976Þorbjörn KjærboGS1
1977Björgvin ÞorsteinssonGA2
1978Gylfi KristinssonGS1
1980Hannes EyvindssonGR1
1981Ragnar ÓlafssonGR2
1982Sigurður PéturssonGR1
1983Gylfi KristinssonGS2
1984Sigurður PéturssonGR2
1985Sigurður PéturssonGR3
1986Úlfar JónssonGK1
1987Úlfar JónssonGK2
1988Úlfar JónssonGK3
1989Úlfar JónssonGK4
1990Úlfar JónssonGK5
1991Karen SævarsdóttirGS1
1992Úlfar JónssonGK6
1993Þorsteinn HallgrímssonGV1
1994Sigurpáll Geir SveinssonGA1
1995Björgvin SigurbergssonGK1
1996Birgir Leifur HafþórssonGL1
1997Birgir Leifur HafþórssonGL2
1998Björgvin SigurbergssonGK2Ragnhildur SigurðardóttirGR1
1999Örn Ævar HjartarsonGS1Ólöf María JónsdóttirGK1
2000Björgvin SigurbergssonGK3Ragnhildur SigurðardóttirGR2
2001Örn Ævar HjartarsonGS2Herborg ArnardóttirGR1
2002Sigurpáll Geir SveinssonGA2Ólöf María JónsdóttirGK2
2003Birgir Leifur HafþórssonGKG3Ragnhildur SigurðardóttirGR3
2004Birgir Leifur HafþórssonGKG4Ólöf María JónsdóttirGK3
2005Heiðar Davíð BragasonGKj.1Ólöf María JónsdóttirGK4
2006Birgir Leifur HafþórssonGKG5Nína Björk GeirsdóttirGKj.1
2007Birgir Leifur HafþórssonGKG6Nína Björk GeirsdóttirGKj.2
2008Hlynur Geir HjartarsonGOS1Ólöf María JónsdóttirGK5
2009Ólafur Björn LoftssonNK1Valdís Þóra JónsdóttirGL1
2010Birgir Leifur HafþórssonGKG7Tinna JóhannsdóttirGK1
2011Ólafur Björn LoftssonNK1Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR1
2012Haraldur Franklín MagnúsGR1ÓIafía Þórunn KristinsdóttirGR2
2013Birgir Leifur HafþórssonGKG8Sunna VíðisdóttirGR1
2014Birgir Leifur HafþórssonGKG9Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR3
2015Birgir Leifur HafþórssonGKG10Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR4
2016Birgir Leifur HafþórssonGKG11Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR5
2017Axel BóassonGK1Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR6
2018Haraldur Franklín MagnúsGR2Valdís Þóra JónsdóttirGL2
2019Guðmundur Ágúst KristjánssonGR1Valdís Þóra JónsdóttirGL3
2020Guðmundur Ágúst KristjánssonGR2Guðrún Brá BjörgvinsdóttirGK1
2021Haraldur Franklín Magnús GR3Guðrún Brá BjörgvinsdóttirGK2
2022Guðmundur Ágúst KristjánssonGKG3Perla Sól SigurbrandsdóttirGR1
2023Haraldur Franklín Magnús GR4Ragnhildur Kristinsdóttir GR1

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ