Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, endaði jöfn í þriðja sæti á Women’s English Open mótinu á LET Access mótaröðinni, sem lauk í dag. Mótið fór fram á The Manchester Golf Club í Englandi dagana 8.-10. júlí og var eitt af stærri mótum tímabilsins.
Ragnhildur endaði jöfn í þriðja sæti á níu höggum undir pari eftir hringi upp á 69, 65 og 73 högg. Hún var jöfn í efsta sæti fyrir lokahringinn eftir frábæran annan hring sem hún lék á 65 höggum, þar sem hún fékk níu fugla og blandaði sér í toppbaráttuna.
Ragnhildur lék lokahringinn á 73 höggum eða einu höggi yfir pari. Hún fékk þrjá fugla á hringnum en einnig tvo skolla og einn tvöfaldan skolla. Enn eitt gott mót hjá Ragnhildi á LET Access, en hún fer upp í áttunda sæti stigalistans með árangrinum.
Andrea Bergsdóttir átti einnig gott mót og endaði jöfn í 12. sæti á fimm höggum undir pari. Andrea lék hringina þrjá á 71, 69 og 71 höggi. Á lokahringnum fékk hún fjóra fugla og þrjá skolla og kláraði mótið af krafti. Andrea fór einnig upp um sæti á stigalistanum og er nú jöfn í 24. sæti listans.
Hulda Clara Gestsdóttir endaði jöfn í 33. sæti á einu höggi undir pari í heildina. Hulda lék fyrstu tvo hringina á 71 og 69 höggum en lokahringinn lék hún á 75 höggum, eða þremur höggum yfir pari, og lauk mótinu á 215 höggum samtals. Hulda fer einnig upp um sæti á stigalistanum situr nú í fjórða sæti.
Stigalistinn er kylfingum mjög mikilvægur, en efstu sjö kylfingarnir í lok tímabilsins fá keppnisrétt á LET mótaröðinni á næsta tímabili.




