GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson eru á meðal keppenda á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti tímabilsins á Nordic Golf League. Mótið fer fram hjá Aalborg Golfklub í Álaborg í Danmörku dagana 14.-16. október.

Fimmtíu efstu kylfingarnir á Road to Europe stigalistanum vinna sér þátttökurétt á lokamótinu. Leikinn er 54 holu höggleikur á þremur keppnisdögum.

Dagbjartur mætir til leiks eftir góðan árangur á Destination Gotland Open í Svíþjóð í síðustu viku. Þar lauk hann keppni jafn í sjötta sæti á fjórum höggum undir pari eftir hringi upp á 71, 69 og 72 högg. Þetta var í sjötta skiptið á tímabilinu sem hann endaði á meðal tíu efstu á mótaröðinni.

Fimm efstu kylfingar stigalistans í lok tímabilsins öðlast keppnisrétt á HotelPlanner mótaröðinni á næsta ári.

Fyrir lokamótið er Dagbjartur í 23. sæti stigalistans með 16.771 stig og Hlynur í 29. sæti með 13.701 stig. Stigamunurinn upp í fimmta sætið er hins vegar meiri en þau 10.000 stig sem sigurvegarinn fær og geta þeir því ekki unnið sér keppnisrétt á HotelPlanner Tour í mótinu.

Dagbjartur á enn möguleika á sæti á mótaröðinni, en hann spilaði sig inn á annað stig úrtökumóta DP World Tour með því að enda jafn í sjötta sæti í úrtökumóti í Þýskalandi í september. Annað stig úrtökumóta fer fram á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember, þar sem Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson verða einnig á meðal keppenda.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ