Auglýsing

Ragnhildur Kristinsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Lóa Dista Jóhannsson hófu leik sunnudaginn 10. desember n.k. á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina 2024 – en LET er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í kvennaflokki í Evrópu.

Alls eru 221 leikmenn skráðir til leiks, sem er metþátttaka, og er keppt er á þremur völlum á Lalla Aicha golfsvæðinu í Marokkó. Til samanburðar voru 156 keppendur á 1. stigi úrtökumótsins í fyrra.

Leiknir verða þrír 18 holu hringir eða alls 54 holur á þremur keppnisdögum og keppa leikmenn alltaf á sama vellinum.

Á 1. stigi úrtökumótsins er keppt um laus sæti á lokaúrtökumótinu fer einnig fram í Marokkó dagana 16.-20. desember. Ekki liggur fyrir á þessari stundi hversu margir keppendur komast áfram af hverjum velli fyrir sig á 1. stigi úrtökumótsins, en gera má ráð fyrir að rúmlega 20 keppendur af hverjum velli fyrir sig komist áfram á lokaúrtökumótið.

Smelltu hér fyrir rástíma, skor og úrslit á úrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröðina 2023:

Guðrún Brá hefur verið með keppnisrétt á LET Evrópumótaröð atvinnukylfinga undanfarin þrjú ár en þrefaldi Íslandsmeistarinn í golfi náði ekki að halda keppnisrétti sínum á síðasta tímabili. Keiliskonan lék á lokaúrtökumótinu í fyrra og endaði þar í 42. sæti sem gaf henni takmarkaðan keppnisrétt á LET á síðasta tímabili.

Ragnhildur Kristinsdóttir, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, var með keppnisrétt á LET Access atvinnumótaröðinni á síðasta tímabili en mótaröðin er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í kvennaflokki. GR-ingurinn tók þátt í fyrsta sinn í fyrra á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina. Þar endaði hún í 81. sæti sem gaf henni keppnisrétt á LET Access atvinnumótaröðinni á síðasta tímabili.

Lóa Dista Jóhannsson er áhugakylfingur og er í landsliðshóp GSÍ. Hún er fædd árið 2006 og nemandi í bandaríska háskólanum Embry – Riddle. Lóa er búsett í Bandaríkjunum og er hún að taka þátt í fyrsta sinn á úrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröðina. Hún er skráð í Golfklúbb Borgarness hér á landi.

Guðrún Brá og Lóa keppa báðar á Rotana vellinum á Lalla Aicha golfsvæðinu en alls eru 76 keppendur á þeim velli. Guðrún Brá lék fyrsta hringinn á 69 höggum eða -3 og 78 höggum (+5) á öðrum keppnisdegi. Hún er í 39. sæti fyrir lokahringinn. Lóa er í 54. sæti á +8 samtals (80-72).

Ragnhildur keppir á Samanah vellinum á Lalla Aicha golfsvæðinu en þar eru 74 keppendur.
Ragnhildur lék fyrsta hringinn á 6 höggum undir pari vallar og á öðrum hring lék hún á 1 höggi undir pari. Hún er því á -7 samtals og var í efsta sæti fyrir lokahringinn.

Noria völlurinn á Lalla Aicha golfsvæðinu er þriðji völlurinn í þessu mót en þar eru alls 71 kylfingar skráðir til leiks.

Á lokaúrtökumótinu sem fram fer dagana 16.-20. desember á Al Maaden og Royal Golf völlunum í Marrakech keppa 156 leikmenn um keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni á næsta tímabili.

Þar koma inn um 90 leikmenn sem léku á LET Evrópumótaröðinni á síðasta tímabili en náðu ekki að halda keppnisrétti sínum. Eins og áður segir má gera ráð fyrir að um 60 keppendur komist inn á lokaúrtökumótið af 1. stiginu í Marokkó, og til viðbótar koma 11 leikmenn af 1. stiginu sem fram fór á Indlandi nýverið.

Niðurskurður er eftir fjórða keppnisdaginn á lokaúrtökumótinu og að loknum fimmta keppnisdegi fá 20 efstu fá keppnisrétt á LET. Keppendur í sætum 21.-50 fá takmarkaðan keppnisrétt á LET á næsta tímabili og keppendur sem komast í gegnum niðurskurðinn eftir fjórða keppnisdag fá einnig takmarkaðan keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ