Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR. Mynd/aðsend
Auglýsing

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Íslandsmeistari í golfi, og Evrópumeistari unglinga, keppir á sterku áhugamannamóti í Svíþjóð dagana 12.-15. júní.

GR-ingurinn fékk boð um að taka þátt á Annika Invitational Europe sem fram fer á Halmstad golfvellinum við samnefnda borg í Svíþjóð.

Smelltu hér fyrir stöðu og úrslit.

Perla Sól lék á 77 höggum eða +5 á fyrsta hringnum. Hún hóf leik á 10. teig og fékk hún tvo fugla (-1), fjóra skolla (+1), einn skramba (+2) og aðrar brautir lék hún á pari. Hún er í sæti nr. 25 en besta skorið er -2.

Völlurinn hefur verið notaður fyrir ýmis stór mót í gegnum tíðina og má þar nefna Solheim bikarinn árið 2007 og Scandinavian Mixed mótið í fyrra – en það mót var hluti af LET Evrópumótaröð kvenna og DP World Tour karla.

Eins og áður segir fékk Perla Sól boð um að taka þátt – en henni var boðið vegna góðrar stöðu hennar á heimslistanum.

Annika Sörenstam er gestgjafi mótsins. Annika er einn besti kylfingur sögunnar. Hún dró sig í hlé frá keppnisgolfinu árið 2008 en hún sigraði á 90 mótum á ferlinum og þar af eru 72 mót á LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum.

Hún sigraði á 10 risamótum á ferlinum og hún sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu fyrir eldri kylfinga árið 2021 þegar hún var 51 árs. Annika kom í heimsókn til Íslands í júní árið 2018 – þar sem hún fylgdist með lokadegi á stigamóti hjá bestu kylfingum landsins í Mosfellsbæ, auk þess að vera með golftengda kynningarviðburði hjá GKG og Nesklúbbnum.

Nánar um mótið hér:


Instagram síða mótsins er hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ