Auglýsing

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Íslandsmeistari í golfi 2022 og Evrópumeistari U16 ára, keppir með úrvalsliði Evrópu sem tekur þátt í keppni á Filippseyjum dagana 15.-18. maí.

Mótið heitir Asia Pacific Golf Confederation (APGC) Junior Championship.

Alls eru 12 lið sem taka þátt og 24 leikmenn alls. 

Tvö tveggja manna lið eru frá Evrópu. Perla Sól verður í liði með Jack Murphy frá Írlandi. Spænsku kylfingarnir Jorge Siyuan Hao og Anna Cañado verða saman í liði.

Keppnisfyrirkomulagið er höggleikur, 54 holur, þar sem að keppt er í einstaklings – og liðakeppni.

Samanlagt skor keppenda í liðakeppninni gildir. 

Smelltu hér fyrir rástíma, skor og úrslit. 

Eftirfarandi þjóðir/lið taka þátt. 

Singapúr
Sri Lanka 
Malasía 
Taívan 
Guam 
Hong – Kong, Kína 
Filippseyjar 
Indland 
Taíland
Kórea
Indónesía
EGA*
*(Ísland, Írland, Spánn). 

 


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ