/

Deildu:

Auglýsing

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, keppir á Girls Amateur Championship sem fram fer dagana 15.-20. ágúst 2023.

Alls eru 144 keppendur, 18 ára og yngri, og verða leiknir tveir 18 holu hringir í höggleikskeppninni – og komast 64 efstu í holukeppni sem tekur við höggleikskeppninni.

Leikið er tveimur keppnisvöllum. Ganton-völlurinn er par 71 og Fulford völlurinn er par 72.

Mótið á sér langa sögu en fyrst var keppt árið 1919 og á þessu móti keppa aðeins sterkustu áhugakylfingar 18 ára og yngri.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Perla Sól fór beint til Englands s.l. sunnudag eftir að Íslandsmótinu í golfi lauk á Urriðavelli – þar sem hún hafði titil að verja. Perla Sól endaði í 2.-4. sæti á Íslandsmótinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ