/

Deildu:

Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, náði flottum árangri á sterku alþjóðlegu móti fyrir áhugakylfinga sem fram fór í Portúgal dagana 24.- 27. janúar í Portúgal. Um var að ræða Opna portúgalska meistaramótið í kvennaflokki, Portuguese International Ladies Amateur Championship.

Mótið fór fram á Penina golfsvæðinu og voru keppendur alls 90. Eins og áður segir var mótið vel skipað og margir af efstu kylfingum á heimslista áhugakylfinga voru á meðal keppenda.

Perla Sól lék hringina fjóra á 6 höggum undir pari eða 286 höggum (68-77-72-69). GR-ingurinn endaði í 8. sæti. Helen Briem frá Þýskalandi sigraði á 18 höggum undir pari vallar og Moa Stridh frá Svíþjóð varð önnur á -13.

Meðalforgjöf keppenda í mótinu var +3.5 en keppnisfyrirkomulagið var höggleikur án forgjafar. Alls voru leiknir fjórir keppnishringir alls 72 holur en niðurskurður var eftir 3. keppnisdaginn þar sem að 54 efstu keppendurnir komast áfram á lokahringinn.

Skor mótsins er hér:

Nánar um mótið hér:

Helen Briem frá Þýskalandi er í 7. sæti heimslista áhugakylfinga. Helen er með +7.5 í forgjöf sem er lægsta forgjöfin í mótinu.

Rocio Tejedo frá Spáni er í 13. sæti á heimslistanum með +6.1 í forgjöf og Mega Örtengren frá Svíþjóð er í 11. sæti heimslistans með +6.7 í forgjöf.

Perla Sól er í sæti nr. 307 á heimslistanum og er GR-ingurinn með +4.3 í forgjöf.

Perla Sól gerði nýverið samkomulag við eitt öflugasta háskólaliðið í Bandaríkjunum – LSU, og mun hún leika með liðinu frá og með haustinu 2025.

Keppendur eru alls 90 og koma þeir frá 21 þjóð.
Flestir eru frá Svíþjóð eða 12 alls, 10 eru frá Spáni og 9 frá Frakklandi.

1Svíþjóð12
2Spánn10
3Frakkland9
4Ítalía7
5England8
6Danmörk7
7Skotland6
8Portúgal6
9Pólland4
10Írland4
11Belgía3
12Finnland3
13Þýskaland3
14Tyrkland1
15Tékkland1
16Slóvenía1
17Norður-Írland1
18Kýpur1
19Ísland1
20Holland1
21Wales1

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ