Auglýsing

Fjórir keppendur frá Íslandi luku leik í dag á European Young Masters sem fram fór í Finnlandi dagana 22.-24. júlí. Keppnisfyrirkomulagið var með þeim hætti að leiknar voru 54 holur í höggleikskeppni eða 18 holur á dag.

Keppt var bæði í einstaklingskeppni (pilta og stúlkna) og liðakeppni

Þrjú bestu skorin töldu hvern dag í liðakeppninni. Alls voru keppendur frá 27 löndum skráðir til leiks en í liðkeppninni tóku 22 þjóðir þátt.

Golfmótið á sér ríka sögu og er eitt af flottustu mótum ársins fyrir kylfinga í þessum aldursflokki.

Nánar um mótið hér:

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, lék frábært golf sem skilaði henni í 7. sæti á +1 samtals. Hún lék tvo af þremur hringjum á 1 höggi undir pari (71-75-71).

Helga Signý Pálsdóttir, GR, bætti sig töluvert eftir erfiða byrjun á mótinu. Helga Signý lék á +21 samtals (83-75-79) sem skilaði henni í 30. sæti.

Skúli Gunnar Ágústsson, GA, lék sérstaklega vel á lokahringnum en hann lék hringina þrjá á +14 samtals (78-89-72).

Veigar Heiðarsson, GA, var stöðugur síðustu tvo dagana en hann lék á 26 höggum yfir pari vallar (84-79-79).

<strong>Frá vinstri Skúli Baldur liðsstjór og sjúkraþjálfari Helga Perls og Veigar er í miðjunni <strong>
<strong>Frá vinstri Veigar Skúli Gunnar Baldur liðsstjóri Helga Signý og Perla Sól <strong>

Íslenska liðið er þannig skipað:

Helga Signý Pálsdóttir, GR
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
Skúli Gunnar Ágústsson, GA
Veigar Heiðarsson, GA

2. keppnisdagur

Perla Sól er áfram í toppbaráttunni en hún er á +2 samtals fyrir lokahringinn eftir að hafa leikið á 71-75 höggum. Helga Signý bætti stöðu sín verulega með góðum hring í dag á 75 höggum og fór hún upp um 8 sæti. Skúli Gunnar lék á 80 höggum í dag og er á +14 samtals í 35. sæti og Veigar bætti sig töluvert og lék á 79 höggum.

Í liðakeppninni er íslenska liðið í 13. sæti af alls 22. liðum.

Nánar um mótið hér:

Skúli Gunnar var í 28. sæti eftir 1. keppnisdaginn en hann lék á 78 höggum. Veigar er í 48 sæti en hann lék á 84 höggum. Perla Sól er á meðal þeirra efstu en hún lék á 71 höggi eða einu höggi undir pari vallar. Helga Signý er í 36. sæti en hún lék á 83. höggum.

Nánar um mótið hér:

Keppnin fer fram á Vierumäki Golf Club (Cooke course) sem er í tæplega tveggja klukkutíma fjarlægð frá flugvellinum í Helsinki. Völlurinn var opnaður árið 2006 og hefur haldið mörg stór golfmót á síðustu árum. Hann er 6411 metrar af meistarateigum karla og 5219 metrar af meistarateigum kvenna, par 72.

Nánar um mótið hér:

<strong>Helga Signý Pálsdóttir Myndsethgolfis <strong>
<strong>Perla Sól Sigurbrandsdóttir Myndsethgolfis <strong>
<strong>Skúli Gunnar Ágústsson Myndsethgolfis<strong>
<strong>Veigar Heiðarsson Myndsethgolfis <strong>

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ