Site icon Golfsamband Íslands

Opið fyrir umsóknir úr Ferðasjóði íþróttafélaga – frestur rennur út 9. janúar 2023

Minnt er á að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið til umsóknar um styrki vegna keppniferða á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2022. Umsóknarfrestur er til miðnættis 9. janúar 2023.

Íþrótta- og ungmennafélög geta stofnað strax umsókn og skráð inn í hana ferðir jafn óðum og þær hafa verið farnar, til að létta sér skráningarvinnu umsókna sem margir bíða með að vinna þar til í árslok. 

Á hverju ári er stofnuð ný umsókn í kerfinu og við það stofnast vefslóð sem viðkomandi fær senda í tölvupósti og gildir sem lykill inn í viðkomandi umsókn þar til hún hefur verið send í gegnum kerfið í lok umsóknartímabilsins eða þegar viðkomandi félag hefur skráð allar þær ferðir sem farnar eru á styrkhæf mót innanlands það árið.

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga.

Upplýsingasíða um sjóðinn.

Þegar komið er inn á svæðið smellið þá á „Sækja um ferðastyrk“ sem er ofarlega á síðunni. Þegar búið er að fylla út reitina í skemanu og ýta á „Stofna”, þá er hægt að fara að skrá ferðirnar. Vefslóð hefur þá líka verið send á skráð netfang tengiliðar og þarf stofnandi umsóknar að muna að gæta vel að vefslóðinni því hún er lykillinn inn á umsóknina út umsóknarferlið.

Í hópíþróttagreinum eru einungis Íslandsmót styrkhæf en í einstaklingsíþróttagreinum eru einnig bikarmót, meistaramót og mótaraðir sem gefa stig til Íslandsmeistaratitils styrkhæf. Mótalisti hverrar íþróttar birtist um leið og umsókn hefur verið stofnuð og viðkomandi íþróttagrein valin.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast sendið póst á Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ á netfangið halla@isi.is.

Exit mobile version