Auglýsing

Atvinnukylfingurinn, Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, endaði í fjórða sæti í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2022. Alls fengu þrír kylfingar atkvæði í kjörinu.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, Íslandsmeistari 2022 og Evrópumeistari unglinga 16 ára og yngri, varð í 13.-14. sæti og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr GK varð í 27. sæti.

Það eru Samtök íþróttafréttamanna sem standa að kjörinu og var því lýst þann 29. desember s.l.
Ómar Ingi Magnússon, handknattleiksmaður, varð efstur í kjörinu, annað árið í röð.

Guðmundur Ágúst er fjórði kylfingurinn sem nær fjórða sætinu í þessu kjöri.

Þetta er í fjórtánda sinn sem kylfingur kemst inn á topp 10 listann í kjörinu á íþróttamanni ársins og er þetta í annað sinn sem Guðmundur Ágúst er tilnefndur sem íþróttamaður ársins.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, var efst í kjörinu árið 2017 og er hún eini kylfingurinn sem hefur fengið þetta sæmdarheiti.

Ólafía varð í þriðja sæti í þessu kjöri árið 2016.

Alls hafa fjórar konur úr röðum GSÍ verið á meðal 10 efstu í þessu kjöri og alls hafa þrettán kylfingar verið á topp 10 listanum frá því að kjörið fór fyrst fram.

Úlfar Jónsson hefur náð næst bestum árangri í kjörinu á Íþróttamanni ársins en hann varð í 2.-10. sæti árið 1987 þegar níu íþróttamenn deildu sætum 2.-10.

Sigurður Pétursson varð í 3. sæti árið 1985 og jafnaði Ólafía því afrek Sigurðar árið 2016.

Þrír kylfingar, auk Guðmundar Ágústs hafa endað í fjórða sæti í þessu kjöri, þeir eru: Úlfar Jónsson (1990), Ólöf María Jónsdóttir (2004) og Birgir Leifur Hafþórsson (2006).

Félagar í Samtökum íþróttafréttamanna eru nú 31 og tóku þeir allir þátt í kjörinu í ár.

Hér má sjá lista yfir þá sem eru í samtökunum.

(1) Magnús Guðmundsson (2), (2) Björgvin Þorsteinsson, (3) Hannes Eyvindsson, (4) Ragnar Ólafsson (2), (5) Sigurður Pétursson, (6) Úlfar Jónsson (6), (7) Þorsteinn Hallgrímsson, (7) Birgir Leifur Hafþórsson (7), (8) Ragnhildur Sigurðardóttir (2), (9) Ólöf María Jónsdóttir (3), (10) Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (3), (11) Valdís Þóra Jónsdóttir (1), (12) Haraldur Franklín Magnús (1), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (2).

Ómar Ingi Magnússon, íþróttamaður ársins 2022. Mynd: Mummi Lú.


Íþróttamaður ársins 2022 er handboltamaðurinn Ómar Ingi Magnússon hjá Magdeburg. Hann varð efstur á 30 atkvæðaseðlum af 31 í ár. Hann var settur í 2. sæti á seðlinum þar sem hann var ekki efstur. Það munaði því aðeins fimm stigum að Ómar ynni með fullu húsi stiga í ár.

Ómar er aðeins annar handboltamaðurinn til að hreppa titilinn íþróttamaður ársins oftar en einu sinni. Ólafur Stefánsson hlaut heiðurinn fjórum sinnum. Þetta er nú í fjórtánda sinn sem handboltamaður er íþróttamaður ársins. Sigríður Sigurðardóttir vann fyrst (1964) svo hafa það verið Geir Hallsteinsson (1968), Hjalti Einarsson (1971), Alfreð Gíslason (1989), Geir Sveinsson (1997), Ólafur Stefánsson (2002, 2003, 2008 og 2009), Guðjón Valur Sigurðsson (2006), Alexander Petersson (2010), Aron Pálmarsson (2012) og Ómar Ingi Magnússon (2021 og 2022).

Frjálsíþróttafólk hefur oftast verið kjörið, ellefu einstaklingar í samtals 21 skipti af 66, en þó aldrei frá því Vala Flosadóttir fékk titilinn árið 2000. Þó karlar séu í miklum meirihluta yfir sigurvegara kjörsins frá upphafi þess hafa konur þó hreppt titilinn fjórum sinnum á síðustu átta árum.

Íþróttamaður ársins 2022

1. Ómar Ingi Magnússon, handknattleikur – 615
2. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna – 276
3. Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleikur – 273
4. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf – 172
5. Anton Sveinn McKee, sund – 164
6. Sandra Sigurðardóttir, fótbolti – 136
7. Elvar Már Friðriksson, körfubolti – 85
8. Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingar – 73
9. Tryggvi Snær Hlinason, körfubolti – 65
10.-11. Viktor Gísli Hallgrímsson, handbolti – 62
10.-11. Hilmar Örn Jónsson, frjálsíþróttir – 62
12. Sveindís Jane Jónsdóttir, fótbolti – 50
13.-14. Snorri Einarsson, skíði – 43
13.-14. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, golf – 43
15. Bjarki Már Elísson, handbolti – 30
16. Hákon Arnar Haraldsson, fótbolti – 26
17. Dagný Brynjarsdóttir, fótbolti – 24
18. Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttir – 19
19. – 20. Thelma Aðalsteinsdóttir, fimleikar – 9
19. – 20. Sóley Margrét Jónsdóttir, kraftlyftingar – 9
21. Thelma Björg Björnsdóttir, íþróttir fatlaðra – 6
22.-24. Hilmar Snær Örvarsson, íþróttir fatlaðra – 5
22.-24. Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut – 5
22.-24. Eygló Fanndal Sturludóttir, lyftingar – 5
25. Jóhann Berg Guðmundsson, fótbolti – 3
26. Valgarð Reinhardsson, fimleikar – 2
27. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, golf – 1

Þjálfari ársins 2022

1. Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta – 138
2. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta – 82
3.-4. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta – 23
3.-4. Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í handbolta – 23
5. Pétur Pétursson, þjálfari kvennaliðs Vals í fótbolta – 7
6. Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur í körfubolta – 4
7.-8. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í fótbolta – 1
7.-8. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari karlaliðs Vals í körfubolta – 1

Lið ársins 2022

1. Valur, meistaraflokkur karla í handbolta – 111
2. Íslenska karlalandsliðið í handbolta – 85
3. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta – 19
4.-5. Valur, meistaraflokkur kvenna í fótbolta – 16
4.-5. Breiðablik, meistaraflokkur karla í fótbolta – 16
6. Íslenska karlalandsliðið í körfubolta – 14
7. Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum – 11
8. Njarðvík, meistaraflokkur kvenna í körfubolta – 7

Eftirtaldir kylfingar hafa verið á topp 10 listanum í kjörinu á Íþróttamanni ársins og í sviganum er sætið sem kylfingurinn endaði í kjörinu það ár.

1963: Magnús Guðmundsson (10.)
1965: Magnús Guðmundsson (7.)
1977: Björgvin Þorsteinsson (9.)
1979: Hannes Eyvindsson (8.)
1981: Ragnar Ólafsson (6.)
1984: Ragnar Ólafsson (9).
1985: Sigurður Pétursson (3.)
1986: Úlfar Jónsson (9.)
1987: Úlfar Jónsson (2.-10.)
1988: Úlfar Jónsson (5.)
1990: Úlfar Jónsson (4.)
1992: Úlfar Jónsson (5.)
1993: Úlfar Jónsson (5.) Þorsteinn Hallgrímsson (8.)
1996: Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
1997: Birgir Leifur Hafþórsson (6.)
1998: Ragnhildur Sigurðardóttir (9.)
2000: Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
2001: Birgir Leifur Hafþórsson (6.)
2002: Ólöf María Jónsdóttir (9.)
2003: Ragnhildur Sigurðardóttir (9.)
2004: Ólöf María Jónsdóttir (4.), Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
2005:Ólöf María Jónsdóttir (8.)
2006: Birgir Leifur Hafþórsson (4.)
2007: Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
2011: Ólafur Björn Loftsson (10.)
2016: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (3.)
2017: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (1.), Valdís Þóra Jónsdóttir (9).
2018: Haraldur Franklín Magnús (7.)
2019: Guðmundur Ágúst Kristjánsson (9.)
2022: Guðmundur Ágúst Kristjánsson (4.).

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ