Búið er að opna fyrir skráningu í Icewear mót Unglingamótaraðarinnar og Golf 14 sem fara fram á Leirdalsvelli og Mýrinni 4.-6. júní.
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er framkvæmdaraðili mótsins.
Unglingamótaröðin
Mótið fer fram dagana 4.-6. júní í flokki 15-18 ára og leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar.
Skráning er hafin, en síðasti skráningardagur er mánudagurinn 1.júní kl. 23:59.
Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan:
Golf 14 – Leirdalur
Mótið fer fram dagana 5.-6. júní á Leirdalsvelli.
Keppt er í flokki 14 ára og yngri. Leiknar eru 36 holur, 18 holur á föstudegi og 18 holur á laugardegi.
Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri stráka er 30 og stúlkna er 36.
Kylfingum í flokki U14 með hærri forgjöf er bent á Icewear Golf14 – Mýrin 5.-6. júní.
Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan:
Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan:



