Auglýsing

Nettómótið – sem er hluti af unglingamótaröðinni og telur á stigalista GSÍ fer fram á Leirdalsvelli dagana 9.-11. júní 2022. Opnað hefur verið fyrir skráningu í mótið – smelltu hér fyrir skráningu.

Mótið er nr. 2 í röðinni á unglingamótaröðinni en fyrsta mótið fór fram um s.l. helgi á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Þriðja mót sumarsins er á dagskrá 15.-17. júlí og er það mót enn án staðsetningar og keppnisvallar. Fjórða mót tímabilsins er Íslandsmótið í golfi hjá unglingum sem fram á tveimur völlum á sama tíma, 15 ára og eldri keppa á Leirdalsvelli hjá GKG dagana 12.-14. ágúst og 14 ára og yngri á Setbergsvelli. Lokamótið og það fimmta á tímabilinu er Íslandsmótið í holukeppni sem fram fer á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar 27.-29. ágúst.

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 mánudaginn 6. júní. 

Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á gkg@gkg.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Leikfyrirkomulag

Höggleikur, 18 holur á dag. Í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs eru leiknar 54 holur en 36 holur í öðrum flokkum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.

Áætlaðir rástímar

Fimmtudagur 13:00-16:00 –  Athugið: Einungis flokkar 17-18 ára og 19-21 árs
Föstudagur    08:00 – 16:00
Laugardagur   08:00 – 16:00 

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða birtir á golf.is  á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en síðan verður raðað út eftir skori. 

Rásröðun 

Fimmtudag: 19-21 árs, 17-18 ára.
Föstudag: 19-21 árs, 17-18 ára, 15-16 ára og 14 ára og yngri.  
Laugardag: 15-16 ára,14 ára og yngri, 19-21 árs og 17-18 ára, 

Þátttökuréttur

Hámarksforgjöf í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs kk er 15 í fgj
Hámarksforgjöf í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs kvk er 25 í fgj
Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri kk er 30
Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri kvk er 36

Ef fjöldi skráðra fer yfir hámark í hverjum flokki miðast forgjöf kylfinga kl:8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur hverjir fá þátttökurétt.
Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhverjum flokki verður mótstjórn heimilt að fjölga í öðrum.
Mótsstjórn heimilt að sameina flokka ef þátttakendur í flokki eru færri en 4.

19 – 21 árs
Mest 18 keppendur

Piltar: Svartir teigar 59 / 6.000,- kr.

Stúlkur: Gráir teigar 52 / 6.000,- kr.

17 – 18 ára
Mest: 42 keppendur –
Piltar: Svartir teigar 59 / 6.000,- kr.
Stúlkur: Gráir teigar 52 / 6.000,- kr.

15 – 16 ára
Mest 42 keppendur

Drengir: Grænir teigar 54 / 5.000,- kr.

Stúlkur: Gráir teigar 52 / 5.000,- kr.

14 ára og yngri  
Mest 42 keppendur

Strákar: Gráir teigar 52 / 5.000,- kr

Stelpur: Appelsínugulir teigar 47 / 5.000,- kr

Alls 144 keppendur

Skráning

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 mánudaginn 6. júní. 

Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á gkg@gkg.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka rástíma. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Athugið almennar reglur um æfingahring.

Kylfuberar

Kylfuberar eru leyfðir í flokki 14 ára og yngri en bannaðir í öðrum flokkum.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.

Þeir kylfingar sem leika 54 holur (17 til 21 árs)  keppa um Nettóbikarinn sem veittur er fyrir lægsta skor pilta og stúlkna.   

Verðlaunaafhending 

Verðlaunaafhending og lokahóf fyrir alla flokka verður haldin að lokinni keppni á laugardagskvöld.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ