GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili er kominn í átta manna úrslit á The Boys’ Amateur Championship eftir sigur gegn Frakkanum Jayson Piermont. Leikurinn réðst í bráðabana á tuttugustu holu.

Óliver byrjaði leikinn af miklum krafti og var þrjár holur upp eftir fyrstu sex holurnar. Piermont sneri leiknum sér í hag, og þegar tvær holur voru eftir var Óliver tvær niður.

Óliver vann sautjándu holuna og minnkaði muninn niður í eina holu þegar ein var eftir. Á átjándu holunni setti hann síðan niður um 13 metra langt pútt til að vinna holuna, jafna leikinn og knýja fram bráðabana.

Nítjánda holan féll, en Óliver tryggði sér sigur á þeirri tuttugustu. Hann er því kominn í átta manna úrslit mótsins, sem er eitt sterkasta og virtasta unglingamót heims.

Óliver hefur nú unnið þrjá leiki í holukeppninni. Í 64 manna úrslitum vann hann Skotann Aidan Lawson 3/2 og í 32 manna úrslitum hafði hann betur gegn Adam Fahey frá Írlandi, aftur 3/2. Í dag vann hann svo þennan góða sigur gegn Piermont, sem varð þriðji í höggleikshluta mótsins.

Í átta manna úrslitunum mætir Óliver Dananum Christian Photin Hansen. Þeir hefja leik klukkan 9:00 að staðartíma á föstudagsmorgun.

Frábær árangur hjá Óliver, sem var eini íslenski kylfingurinn sem komst áfram úr höggleikshluta mótsins. Hann var jafn í 118. sæti eftir fyrsta hring en lék annan hringinn á 66 höggum, fimm undir pari.

Hægt er að fylgjast með mótinu á heimasíðu The R&A.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ