GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili heldur áfram góðri frammistöðu sinni á The Boys’ Amateur Championship í Skotlandi. Hann vann Adam Fahey frá Írlandi í 32 manna úrslitum í morgun og er því kominn í sextán manna úrslit mótsins.

Óliver var eini íslenski kylfingurinn sem komst áfram úr höggleiknum, en alls hófu 144 keppendur leik á Gailes Links. Hann hefur nú unnið tvo leiki í holukeppninni og tryggt sér sæti í 16 manna úrslitum á einu sterkasta unglingamóti heims.

Í 64 manna úrslitunum vann Óliver Skotann Aidan Lawson, 3/2. Hann fylgdi því eftir með öðrum 3/2 sigri gegn Fahey í morgun. Síðar í dag leikur hann um sæti í átta manna úrslitum mótsins gegn Frakkanum Jayson Piermont.

Lawson varð sextándi í höggleikshluta mótsins, Fahey tólfti og Piermont þriðji. Óliver hefur því slegið út nokkra af sterkustu keppendum mótsins.

Gunnar Þór Heimisson, Arnar Daði Svavarsson og Bryndís Eva Ágústsdóttir voru einnig fulltrúar Íslands í The Boys’ og Girls’ Amateur Championship í vikunni, en þau luku keppni eftir höggleikshluta mótanna.

Three young golfers pose together under an R&A Boys' Amateur Championship arch with trophy graphics on the sides, blue sky behind them.
Gunnar Arnar og Óliver

Hægt er að fylgjast með stöðu mótsins á heimasíðu The R&A.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ