GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili er kominn í undanúrslit The R&A Boys’ Amateur Championship eftir öruggan sigur gegn Dananum Christian Photin Hansen í átta manna úrslitum í morgun, 4/3.

Hann hefur nú unnið fjóra leiki í röð í holukeppninni á Gailes Links í Skotlandi.

Í undanúrslitunum mætir Óliver Frakkanum Tao Pemerika, ríkjandi Evrópumeistara unglinga. Pemerika vann European Young Masters í júlí með sex högga mun.

Óliver hefur leikið frábært golf síðustu daga. Hann var jafn í 118. sæti eftir fyrsta hring höggleiksins, en svaraði með frábærum öðrum hring upp á 66 högg. Það var fjórða besta skor dagsins og tryggði honum sæti í 64 manna holukeppninni.

Í fyrstu umferð vann Óliver Skotann Aidan Lawson 3/2 og hafði síðan betur gegn Adam Fahey frá Írlandi í 32 manna úrslitum.

Leikurinn gegn Frakkanum Jayson Piermont í 16 manna úrslitum var gífurlega spennandi. Óliver var þrjár holur upp snemma í leiknum en var tveimur undir þegar aðeins tvær holur voru eftir. Hann vann 17. holuna og setti síðan niður um 13 metra langt pútt á 18. holunni til að jafna leikinn. Óliver tryggði sér loks sigur á 20. holu og sæti í átta manna úrslitum.

Þar hélt sigurgangan áfram gegn Photin Hansen í morgun. Óliver byrjaði hringinn af krafti og vann fyrstu fimm holurnar. Hann var kominn sjö holur upp eftir níu og var einungis formsatriði að klára leikinn eftir það. Hansen klóraði í bakkann með fjórum fuglum í röð, en munurinn of mikill og lauk leiknum á fimmtándu holu. Framundan er undanúrslitaleikur gegn einum sterkasta unglingakylfingi Evrópu. Sigurvegarinn tryggir sér sæti í 36 holu úrslitaleik mótsins, sem fer fram á morgun.

Gradient header with numbers 1–18, followed by two players and square score tiles highlighting recent picks.
Átta manna úrslitin

Hægt er að fylgjast með mótinu á heimasíðu The R&A.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ