/

Deildu:

Birgir Leifur Hafþórsson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Auglýsing

Golfsamband Íslands hefur valið kylfinga ársins 2016. Þeir eru Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) og Birgir Leifur Hafþórsson (GKG).

Ólafía Þórunn náði besta árangri sem íslenskur kylfingur hefur náð á árinu 2016. Hún tryggði sér keppnisrétt á LPGA atvinnumótaröðinni í Bandaríkjunum með eftirminnilegum hætti í byrjun desember. Ólafía fór í gegnum öll þrjú stig úrtökumótsins og endaði í öðru sæti á lokaúrtökumótinu en 20 efstu tryggðu sér keppnisrétt á LPGA á næsta tímabili sem hefst í janúar á Bahamas.

Ólafía lék á sínu fyrsta tímabili á LET Evrópumótaröðinni á þessu ári. Hún endaði í 96. sæti á stigalistanum í lok tímabilsins en besti árangur hennar var 16. sæti í Tékklandi. Árangur hennar á fyrstu tveimur keppnisdögunum á Abu Dhabi vakti mikla athygli en þar var Ólafí í efsta sæti fyrstu tvo keppnisdagana, en það hefur aldrei gerst hjá íslenskum keppenda á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.

Ólafía varð Íslandsmeistari í golfi í þriðja sinn á ferlinum á Jaðarsvelli á Akureyri í júlí. Þar skrifaði hún nýjan kafla í golfsöguna með því að vera á besta samanlagða skorinu af öllum keppendum Íslandsmótsins. Ólafía lék á -11 samtals og Valdís Þóra Jónsdóttir var á -10 samtals. Ólafía Þórunn hefur lagt mikið á sig á undanförnum misserum til þess að ná markmiðum sínum. Hún er frábær fyrirmynd og dugnaður hennar hefur vakið verðskuldaða athygli.

Birgir Leifur Hafþórsson bætti met á Íslandsmótinu í golfi sem staðið hafði lengi. Hann varð fyrsti kylfingurinn til þess að fagna Íslandsmeistaratitlinum í sjöunda sinn. Áður hafði Birgir Leifur deilt því meti en Björgvin Þorsteinsson og Úlfar Jónsson sigruðu sex sinnum á Íslandsmótinu.

Birgir er eini íslenski kylfingurinn sem hefur náð inn á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki en hann er með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni í Evrópu, sem er sú næst sterkasta í Evrópu. Á þessu ári lék Birgir Leifur á níu mótum á Áskorendamótaröðinni. Hann endaði í 96. sæti á stigalistanum og er með ágæta stöðu fyrir næsta tímabil hvað fjölda móta varðar. Besti árangur hans á tímabili var 6. sæti og hann varð einnig í 12. sæti.

Birgir Leifur er öðrum íþróttamönnum mikil fyrirmynd hvað varðar þolinmæði og þrautseigju. Hann er eini kylfingurinn sem hefur sigrað á Íslandsmótinu í golfi með tveggja áratuga millibili.

Golfsamband Íslands óskar Ólafíu og Birgi til hamingju með titilinn.

karsins520-2

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ