Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Auglýsing

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er í hópi 10 efstu í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2016. Það eru Samtök íþróttafréttamanna sem standa að kjörinu og verður því lýst þann 29. desember. Þetta er þetta í 61. sinn sem kjörið fer fram. Alls eru fimm konur og fimm karla á listanum yfir 10 efstu, og er þetta þriðja árið í röð sem listinn er þannig skipaður.

Ólafía er tíundi kylfingurinn sem er á topp 10 listanum í þessu kjör frá upphafi og þriðja konan. Úlfar Jónsson hefur náð bestum árangri í kjörinu á Íþróttamanni ársins en hann varð í 2.-10. sæti árið 1987 þegar níu íþróttamenn deildu sætum 2.-10. Sigurður Pétursson varð í 3. sæti árið 1985 sem er næst besti árangurinn frá upphafi hjá kylfingi í þessu kjöri.
Eftirtaldir eru á topp 10 listanum í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2016:

Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttir
Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna
Aron Pálmarsson, handbolti
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna
Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund
Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingar
Martin Hermannsson, körfubolti
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf
Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna

Lið ársins:
A-landslið karla í knattspyrnu
A-landslið karla í körfubolta
A-landslið kvenna í knattspyrnu

Þjálfari ársins:
Dagur Sigurðsson
Guðmundur Guðmundsson
Heimir Hallgrímsson

Eftirtaldir kylfingar hafa verið á topp 10 listanum í kjörinu á Íþróttamanni ársins:
1963: Magnús Guðmundsson 10.
1965: Magnús Guðmundsson 7.
1977: Björgvin Þorsteinsson 9.
1979: Hannes Eyvindsson 8.
1981: Ragnar Ólafsson 6.
1984: Ragnar Ólafsson 9.
1985: Sigurður Pétursson 3.
1986: Úlfar Jónsson 9.
1987: Úlfar Jónsson 2.-10.
1988: Úlfar Jónsson 5.
1990: Úlfar Jónsson 4.
1992: Úlfar Jónsson 5.
1993: Úlfar Jónsson 5. Þorsteinn Hallgrímsson 8.
1996: Birgir Leifur Hafþórsson 5.
1997: Birgir Leifur Hafþórsson 6.
1998: Ragnhildur Sigurðardóttir 9.
2000: Birgir Leifur Hafþórsson 5.
2001: Birgir Leifur Hafþórsson 6.
2002: Ólöf María Jónsdóttir 9.
2003: Ragnhildur Sigurðardóttir 9.
2004: Ólöf María Jónsdóttir 4., Birgir Leifur Hafþórsson 5.
2005. Ólöf María Jónsdóttir 8.
2006: Birgir Leifur Hafþórsson 4.
2007: Birgir Leifur Hafþórsson 5.
2011: Ólafur Björn Loftsson 10.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ