Gamla appið sem flestir kylfingar hér á landi kynntust þegar kerfið var innleitt árið 2020 hefur nú verið uppfært í nútímalegra viðmót og með meiri virkni en áður. Með þessari uppfærslu fá kylfingar sama notendaviðmót og ef þeir væru að nota kerfið í gegnum vefsíðu.
Við hvetjum kylfinga til að hafa GolfBox appið í símanum alltaf uppfært og fylgjast með ef þeir fá tilkynningu um að uppfæra í nýjustu útgáfu.
Stafrænt kort til staðfestingar á mætingu í rástíma
Í appinu er ný virkni sem gefur golfklúbbum möguleika á að láta kylfinga staðfesta mætingu í rástíma með “Stafrænu korti”. Golfklúbburinn getur verið með skjá í afgreiðslu sem sýnir QR kóða sem kylfingur þarf að skanna til að staðfesta mætingu sína. Kortið sýnir einnig núverandi forgjöf kylfings og dagsetningu síðasta skráða hring til forgjafarútreiknings.
![stafraent_kort - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2023/04/stafraent_kort-1024x573.png)
Sjá leiðbeiningar hvernig þú staðfestir mætingu í rástíma með stafrænu korti.