Auglýsing

Nettó mótið á Áskorendamótaröðinni fer fram fimmtudaginn 3. ágúst 2023 á Mýrinni hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Skráningu í mótið lýkur kl. 12:00 þriðjudaginn 1. ágúst 2023.

Smelltu hér til að skrá þig.

Leikfyrirkomulag mótaraðarinnar er eftir alþjóðlegri fyrirmynd mótaraðar fyrir ungra kylfinga. Þessi mótaröð er hugsuð sem fyrstu skref og stuðningur við keppnisþátttöku ungra kylfinga. Markmiðið er að hafa gaman og aðaláherslan lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans. Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar eru hvattir til þess að taka virkan þátt í að gera þessi mót sem skemmtilegust fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum mótin. 

Helstu atriði varðandi framkvæmd mótsins:

  • Ræst verður út frá kl. 9:00 – 14:00 eða eftir því hver heildar þátttakendafjöldi verður.
  • Kylfuberar eru leyfðir, Sjá almennar reglur um kylfubera.
  • Höggleiks afbrigði: eftir 9 högg er skylda að taka upp og skrifa 10 högg.
  • Fallreitur skal vera flatarmegin þegar slegið er yfir vítasvæði.
  • Ef bolti týnist er lausnin eins og um vítasvæði væri að ræða. Eitt högg í víti þar sem boltinn fór inn í runna eða þ.h. og leikið áfram.
  • Mótið er ekki stigamót
  • Mótið gildir ekki til forgjafar.

Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum bæði hjá stelpum og strákum:

10 ára og yngri

9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar

Teigar 35 (bláir)

12 ára og yngri

9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar

Teigar 35 (bláir)

14 ára og yngri 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar teigar 41 (appelsínugulir)

15-18 ára 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar teigar 47 kk (grænir) og teigar 41 (appelsínugulir) kvk

Skráning

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is seinasta lagi 1. ágúst fyrir kl. 12:00. Engar skráningar eru leyfðar eftir að skráningarfresti lýkur, jafnvel þó laus sæti séu í mótið. Afskráning skal berast tímanlega á netfang golfklúbbsins sem heldur mótið (ulfar@gkg.is).

Þátttökugjald

2.600,- kr.

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða kynntir fyrir mótið en ræst er út frá kl. 9:00 á mótsdegi. Forráðamenn eru beðnir um að fylgjast með tölvupósti og með mótinu í GolfBox.

Áætluð rásröð

15-18 ára kk; 15-18 ára kvk; 14 ára og yngri kk; 12 ára og yngri kk; 14 ára og yngri kvk; 12 ára og yngri kvk; 10 ára og yngri kk; 10 ára og yngri kvk

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innfalinn í mótsgjaldi en keppnisvöllurinn verður opinn fyrir æfingahring fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi áður en mótið hefst. Vinsamlegast hafið samband við proshop@gkg.is eða 5707373 til þess að panta rástíma. Athugið að greiða þarf þátttökugjald áður en æfingahringur er leikinn.

Verðlaun og verðlaunaafhending

Allir keppendur mótsins fá viðurkenningarskjal og pylsu og Floridana að leik loknum. Einnig verða veitt verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda. Verðlaunaafhending fer fram um leið og leik lýkur í hverjum flokki.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Mótsstjórn 

Úlfar Jónsson, Ásta Kristín Valgarðsdóttir, Helgi Már Halldórsson

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ