Kristján Þór Einarsson og Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Íslandsmeistarar í golfi 2022. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Íslandsmótið í golfi 2023 fer fram á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi dagana 10.-13. ágúst.

Þetta er í annað sinn sem Íslandsmótið fer fram á Urriðavelli en mótið fór fram árið 2006 á Urriðvelli.

Skráning í mótið fer fram í GolfBox og er skylda að greiða mótsgjald við skráningu. Allir kylfingar geta skráð sig en tryggð þátttaka skýrist þó ekki fyrr en eftir að skráningafresti lýkur og endanlegur keppendalisti hefur verið gefinn út. Þeir kylfingar sem skrá sig í mótið en fá ekki þátttökurétt munu fá mótsgjald endurgreitt.

Skráningarfrestur er til kl. 23:59 mánudagsins 31. júlí. Smelltu hér til að skrá þig.

Keppnisfyrirkomulagið er höggleikur í flokki karla og kvenna án forgjafar, leiknar verða 72 holur á fjórum dögum. Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis. Hámarksfjöldi þátttakenda skal vera 150. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5. Þátttakendur skulu vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.

Keppnisskilmálar Íslandsmótsins í golfi

Þátttökuréttur og niðurskurður

Höggleikur í flokki karla og kvenna án forgjafar, leiknar verða 72 holur á fjórum dögum. Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis. Hámarksfjöldi þátttakenda skal vera 150. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5. Þátttakendur skulu vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.

Þátttökurétt í hvorum flokki hafa, í þessari röð:

  1. Fyrrum Íslandsmeistarar í golfi.
  2. Leikmenn með stig á heimslista atvinnukylfinga (www.owgr.com) kl. 8:00
    morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.
  3. Leikmenn í sætum 1 – 2000 á heimslista áhugakylfinga (www.wagr.com) kl. 8:00
    morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.
  4. Leikmenn í sætum 1 – 50 á stigalista GSÍ á yfirstandandi ári. Ef tveir eða fleiri
    leikmenn eru jafnir í 50. sæti skulu þeir báðir/allir fá þátttökurétt.
  5. Aðrir leikmenn sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki kl. 8:00 morguninn
    eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.

Þó skulu að lágmarki 36 kylfingar fá þátttökurétt í hvorum flokki. Keppendum skal þó fjölgað þannig að fullir ráshópar verði í hvorum flokki.

Eftir 36 holu leik skal leikmönnum fækkað þannig að þau 60% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram. Einnig skulu leikmenn ætíð fá að halda áfram keppni séu þeir 10 höggum eða minna á eftir þeim leikmanni sem er í 1. sæti.

Skráning

Skráning í mótið fer fram í GolfBox og er skylda að greiða mótsgjald við skráningu. Allir kylfingar geta skráð sig en tryggð þátttaka skýrist þó ekki fyrr en eftir að skráningafresti lýkur og endanlegur keppendalisti hefur verið gefinn út. Þeir kylfingar sem skrá sig í mótið en fá ekki þátttökurétt munu fá mótsgjald endurgreitt.

Skráningarfrestur er til kl. 23:59 mánudaginn 31. Júlí.

Mótsgjald og æfingahringir

Mótsgjald er 22.000 kr. Innifaldir eru tveir æfingahringir, æfingaboltar á meðan á móti stendur og miði í lokahóf. Mótsgjald fæst einungis endurgreitt séu forföll boðuð eigi síðar en kl. 18:00, þremur dögum fyrir fyrsta keppnisdag. Formlegir æfingadagar eru frá 14:30 þriðjudaginn 8. ágúst fram til 17:00 miðvikudaginn 9. ágúst. Engir rástímar eru í boði eftir 17:00 miðvikudaginn 9. ágúst þar sem mótsundirbúningur hefst strax að loknum síðasta bókanlega rástíma.
Hægt er að bóka æfingahringi fyrir dagana 8. ágúst og 9. ágúst á þessari slóð: https://tourentry.golfbox.dk/practicerounds/?cid=3690660 Fyrirséð er að það verði mikil eftirspurn eftir æfingahringjum á formlegum æfingadögum. Því verður opið fyrir æfingahringi frá og með 1. ágúst og eru kylfingar hvattir til að taka æfingahringi tímanlega. 
Kylfingar þurfa að hafa samband við golfklúbbinn til að bóka rástíma. Hægt er að bóka í síma 5850050 eða á netfangið afgreidsla@oddur.is

Vinsamlegast athugið að kylfingar þurfa að hafa skráð sig í mótið og greitt mótsgjald til að geta leikið æfingahring. Leiki kylfingur æfingahringi en hættir svo við þátttöku í móti er vallargjald dregið af þátttökugjaldi fyrir endurgreiðslu.

Lokahóf

Miði á lokahóf er innifalinn í mótsgjaldi.

Verðlaun

Veitt verða peningaverðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.

  1. sæti 110.000 kr. (500.000 kr. fyrir atvinnukylfinga) 
  2. sæti 80.000 kr. (300.000 kr. fyrir atvinnukylfinga)  
  3. sæti 50.000 kr. (150.000 kr. fyrir atvinnukylfinga)

Undankeppni

Verði umfram skráning í mótið sem nemur a.m.k. níu keppendum í öðrum hvorum eða báðum flokkum mun undankeppni fara fram. Umframskráningin skal bundin við þá leikmenn sem standast forgjafarmörk og hafa skráð sig til keppni í Íslandsmótinu innan tilskilins skráningarfrests. Keppt verður um tvö síðustu sætin í viðkomandi flokki.

Undankeppnin er 18 holu höggleikur án forgjafar og fer fram 1. ágúst á Urriðavelli. Ræst verður út af 1. teig frá kl. 15:00. Verði leikmenn jafnir skal leika bráðabana um efstu tvö sætin. Mótsgjald er 3.500 kr. og skal greitt á staðnum. Undankeppnin verður því aðeins haldin að minnst fjórir keppendur skrái sig í undankeppnina í viðkomandi flokki.

Biðlisti

Verði undankeppninni aflýst (t.d. ef lágmarksfjölda þátttakenda er ekki náð) skulu leikmenn sem skráðu sig í undankeppnina hafa forgang varðandi þátttöku í Íslandsmótinu umfram þá sem ekki skráðu sig. Fari undankeppnin fram ræðst röð leikmanna á biðlista af árangri í undankeppninni og að því frátöldu af forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.

Ef tveir eða fleiri kylfingar eru með sama skor í undankeppni (í sætum 3 og aftar) eða jafnháa forgjöf hafi þeir ekki tekið í þátt í undankeppni, ræður hlutkesti röð á biðlista. Verði forföll fyrir fyrsta keppnisdag verður haft samband við kylfinga á biðlista og þeim boðin þátttaka. Kylfingar á biðlista geta mætt á keppnisstað að morgni fyrsta keppnisdags og verið til taks ef forföll verða. Viðkomandi þurfa að gefa sig fram við afgreiðslu.

Annað

Með þátttöku í mótinu heimila keppendur myndatöku og myndbirtingar á miðlum GSÍ og hjá RÚV.

Kylfingar skulu staðfesta mætingu í afgreiðslu á æfingadögum.

Mótsstjórn: Hörður Geirsson, Viktor E. Viktorsson, Brynjar Eldon Geirsson, Svavar Geir Svavarsson, Þórður Ingason.

​Netfang mótsstjórnar: motanefnd@golf.is

Dómari: Þórður Ingason

Birt með fyrirvara um breytingar.


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ