Auglýsing

Nettó mótið á Unglingamótaröð GSÍ fer fram á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar dagana 1.-3. ágúst 2023.

Skráningu í mótið lýkur föstudaginn 28. júlí kl. 23:59.

Smelltu hér til að skrá þig.

Keppnisskilmálar – Unglingamótaröðin (2)

Í flokkum 17-21 árs eru leiknar 54 holur en 36 holur í öðrum flokkum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.

Áætlaðir rástímar

Þriðjudagur    08:00 – 16:00
Miðvikudagur   08:00 – 16:00
Fimmtudagur 08:00-11:00 –  Athugið: Einungis flokkar 17-21 árs.

Rásröðun

Þriðjudag: 17-21 árs, 14 ára og yngri, 15-16 ára.
Miðvikudag: 14 ára og yngri, 17-21 árs, 15-16 ára.
Fimmtudag: 17-21 árs.

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða birtir á golf.is á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en síðan verður raðað út eftir skori.

Þátttökuréttur

Hámarksforgjöf í flokkum 17-21 árs kk er 15

Hámarksforgjöf í flokkum 17-21 árs kvk er 25

Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára kk er 30

Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára kvk er 36

Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kk er 30

​​Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kvk er 36

Ef fjöldi skráðra fer yfir hámark í hverjum flokki miðast forgjöf kylfinga kl: 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur hverjir fá þátttökurétt.

Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhverjum flokki verður mótstjórn heimilt að fjölga í öðrum.

Mótsstjórn heimilt að sameina flokka ef þátttakendur í flokki eru færri en 4.

17 – 21 árs

Mest 48 keppendur

Piltar   

Svartir teigar 59

6.000,- kr

Stúlkur

Gráir teigar 52

6.000,- kr

15 – 16 ára

Mest 42 keppendur

Drengir

Grænir teigar 54

5.000,- kr

Stúlkur

Gráir teigar 52

5.000,- kr

14 ára og yngri 

Mest 42 keppendur

Strákar

Gráir teigar 52

5.000,- kr

Stelpur

Appelsínugulir teigar 47

5.000,- kr

Alls 132 keppendur

Skráning

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 föstudaginn 29. júlí.  Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á ulfar@gkg.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Æfingahringur 

Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka rástíma. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Athugið almennar reglur um æfingahring.

Kylfuberar

Kylfuberar eru leyfðir í flokki 14 ára og yngri en bannaðir í öðrum flokkum.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.

Þeir kylfingar sem leika 54 holur (17 til 21 árs)  keppa um Nettóbikarinn sem veittur er fyrir lægsta skor pilta og stúlkna.  

Verðlaunaafhending

Verðlaunaafhending og lokahóf verður haldið að loknum leik hvers aldursflokks fyrir sig á lokadegi mótsins.

Mótsstjórn

Úlfar Jónsson, Jón K. Baldursson, Ásta Kristín Valgarðsdóttir, Agnar Már Jónsson

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ