Auglýsing

Evrópumeistaramót 16 ára og yngri 2023, European Young Masters, fór fram á Sedin vellinum í Slóvakíu 27.-29. júlí.

Fjórir íslenskir kylfingar tóku þátt. Markús Marelsson, GK, Guðjón Frans Halldórsson, GKG, Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM og Auður Bergrún Snorradóttir, GM.

Keppnisfyrirkomulag mótsins var höggleikur – leiknir eru þrír 18 holu hringir á þremur keppnisdögum. Keppt var í stúlkna – og piltaflokki.

Smelltu hér fyrir úrslit mótsins:

Markús gerði sér lítið fyrir og endaði í öðru sæti í piltaflokki 16 ára og yngri. Hann lék á 214 höggum (71-71-72) (-5 samtals). Ben Bolton frá Englandi lék best allra á -11 samtals. Frábær árangur hjá Markúsi. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, sigraði í stúlknaflokki á þessu móti í fyrra.

Guðjón Frans Halldórsson, GKG, lék á 231 höggi (78-77-76) (+12 samtals), hann endaði í 32. sæti.

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, lék á 232 höggum (79-79-74) (+13 samtals), hún endaði í 34. sæti.

Auður Bergrún Snorradóttir, GM, lék á 232 höggum (79-73-80) (+13 samtals), hún endaði í 34. sæti.

Samhliða fór fram liðakeppni þar sem að þrjú bestu skorin á hverjum keppnishring töldu. Ísland endaði í 13. sæti af alls 28. liðum.

Efri röð frá vinstri: Markús Marelsson, Guðjón Frans Halldórsson, Alexandra Eir Grétarsdóttir, liðsstjóri og sjúkraþjálfari. Neðri röð frá vinstri Pamela Ósk Hjaltadóttir, Auður Bergrún Snorradóttir.
Markús Marelsson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ