Ágætu kylfingar í LEK. Síðasta mótið í Öldungamótaröðinni er á laugardaginn hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi – og það er enn tími til að skrá sig.
Keppnin um stigameistara Öldungamótaraðarinnar er spennandi og mjótt á munum í mörgum flokkum.
Sama má segja um keppni til sætis í landsliðunum. Þar er enn allt opið. Hvetjum alla til að mæta á Akranes þann 25. og vera með í spennandi keppni í góðum félagsskap.
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/12034211_694138720689571_7523608561813820052_o-1024x576-1.jpg)